Úr Kveik í aðstoðarmannastöðu í ráðuneyti

Sigríður Halldórs­dóttir tekur við af Sigríði Víðis Jóns­dóttur sem annar aðstoðar­maður umhverfis- og auðlinda­ráðherra.

Sigríður Halldórs­dóttir, sem síðastliðinn áratug hefur starfað hjá RÚV og nú síðast í frétta­skýringa­þættingum Kveik, hefur verið ráðin aðstoðar­maður Guðmundar Inga Guðbrands­sonar, umhverfis- og auðlinda­ráðherra.

Hún tekur við starfi Sigríðar Víðis Jóns­dóttur sem verið hefur aðstoðar­maður umhverfis- og auðlinda­ráðherra frá því í júní 2018. Hún hefur störf 9. desember næst­komandi.

Sigríður er með BA-próf í heimspeki, hagfræði og stjórnmála­fræði frá Háskólanum á Bifröst og meistara­gráðu í alþjóða­samskiptum frá IBEI, Institut Barcelona d’Estudis Internacionals, í Barcelona á Spáni.

Sigríður hefur unnið við fréttir, frétta­skýringar og dagskrár­gerð á RÚV síðastliðinn áratug. Í frétta­tilkynningu kemur fram að auk starfa við Kveik hefur hún verið umsjónar­maður í Landanum og samið og séð um sjónvarps­þættina Ævi og Rætur. „Sigríður hefur fjórum sinnum hlotið Eddu-verðlaun ásamt félögum sínum fyrir sjónvarps­þáttagerð og fyrr á árinu var hún valin Sjónvarps­maður ársins á Eddunni. Árið 2018 var Sigríður auk þess tilnefnd til Blaðamanna­verð­launanna fyrir umfjöllun um plast­mengun. Maki Sigríðar er Jón Ragnar Ragnarsson, kennari við Mennta­skólann við Hamrahlíð, og eiga þau tvær dætur; Urði 9 ára og Hallveigu 3 ára.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár