Ertu með dekkin og handfrjálsa búnaðinn í lagi?

Sektir fyrir umferð­ar­laga­brot hækka um tugi þús­unda króna frá og með deg­inum í dag, 1. maí, sam­kvæmt nýrri reglu­gerð um sektir og önnur við­ur­lög fyrir umferð­ar­laga­brot.

Sektir fyrir umferð­ar­laga­brot um tugi þús­unda króna frá og með deg­inum í dag, 1. maí, sam­kvæmt nýrri reglu­gerð um sektir og önnur við­ur­lög fyrir umferð­ar­laga­brot.

Sekt fyrir að tala í sím­ann undir stýri fer úr 5.000 krónum í 40 þús­und. Sekt fyrir að aka á nagla­dekkjum án heim­ildar hækkar úr 5.000 krónum á hvern hjól­barða í 20 þús­und á hvern hjól­barða. Þá mun héðan í frá kosta 20 þús­und krónur í stað 10 þús­und að nota ekki örygg­is­belti og 30 þús­und í stað 15 þús­und að virða ekki bið­skyldu.

Sektir fyrir hraða­akstur aukast einnig veru­lega, sem og sektir fyrir akstur undir áhrifum áfengis eða vímu­efna auk ann­arra umferð­ar­laga­brota.

Lægsta sekt­ar­fjár­hæð verður nú 20 þús­und krónur en var áður 5.000. Eina und­an­tekn­ingin þar á verður sekt fyrir að hafa ekki öku­skír­teini með­ferðis upp á 10 þús­und krónur.

Í til­kynn­ingu frá Sam­göngu­stofu segir að sektir fyrir umferð­ar­laga­brot hafa margar hverjar verið óbreyttar í rúman ára­tug og mörgum þótt þær of lágar og hafa lít­inn fæl­ing­ar­mátt. „Sekt­ir við um­ferð­ar­laga­brot­um eru til þess falln­ar að veita öku­mönn­um aukið aðhald og stuðla þannig að auknu um­ferðarör­yggi. Nauðsyn­legt er að fjár­hæð sekta end­ur­spegli al­var­leika um­ferð­ar­laga­brota og þá hættu sem þau skapa. Flestar sektir hækka og oft þrefalt eða fjór­falt á við það sem þær eru núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár