Halda uppistand í þágu geðheilbrigðis og gera grín að eigin röskunum

Hópur fólks með geð-og taug­arask­anir stendur fyrir góð­gerð­ar­uppi­standi á fimmtu­dags­kvöld.

Næst­kom­andi fimmtu­dags­kvöld mun hóp­ur­inn „My Voices Have Tourettes“  standa fyrir góð­gerð­ar­uppi­standi á skemmti­staðnum The Secret Cellar í Lækj­ar­götu. Við­burð­ur­inn hefst kluk­ann fimm síð­degis og stendur fram yfir mið­nætti, en mark­miðið er vit­und­ar­vakn­ingn um geð­heil­brigði.

Hópinn skipar fólk sem glímir við tauga- og geð­rask­anir, þau Elva Dögg Hafberg, Dan Zerin og Hanna Proppé Bailey. Elva og Dan eru með Tourettes en Hanna er með geð­klofa. Í hóp­inn bætt­ust síðan Þór­hallur Þór­halls­son sem er hald­inn ofsa-kvíða­röskun, Stefnir Bene­dikts­son sem stríðir við geð­hvörf og svo Carmela Torrini og Steindór Har­alds­son sem bæði eru ein­hverf.

Meg­in­inn­tak uppi­stand­anna er hvers­dags­líf með­lima hóps­ins og hvernig sé að lifa með rask­an­irnar, eða eins og Elva Dögg orðar það: „allt þetta fyndna og asna­lega sem maður lendir í þegar maður þarf að lifa með ein­hverju sem fellur ekki inn í normið“.

Til­gangur sýn­ing­ar­innar, segir Elva, er að útvíkka merk­ingu þess hvað telst vera eðli­legt og venju­legt. „Við eigum öll heima í sama meng­inu, við erum öll normal.“

„Við eigum öll heima í sama meng­inu,
við erum öll normal“

Hópurinn var stofn­aður árið 2018 fyrir Reykja­vík Fringe hátíð­ina en hátíðin var haldin í fyrsta skipti hér á landi í fyrra. Þar er lagt mikið upp úr því að gefa jað­ar­hópum pláss á sviði og því fannst hópnum til­valið að hefja grín­fer­il­inn þar.

Uppi­stand hóps­ins sló í gegn á hátíð­inni og í kjöl­farið var þeim boðið að flytja uppi­stand öll fimmtu­dags­kvöld á The Secret Cellar, fyrsta og eina grín­klúbbi Íslands. Hópurinn fyllir sal­inn kvöld eftir kvöld.

Á við­burð­inum næst­kom­andi fimmtu­dag verður efnt til fjár­öfl­unar fyrir þrjú félög; Tourette-sam­tök Íslands, Geðhjálp og Ein­hverfu­sam­tökin. Til sölu verða bolir og vegg­spjöld hönnuð af vinum hóps­ins, þeim Hauki Tý Þor­steins­syni og Herthu Maríu Úlfs­dóttur.

Auk uppi­stands­ins mun hóp­ur­inn opna fyrir spurn­ingar úr sal og gefa áhorf­endum kost á að fræð­ast um rask­an­irnar. Elva segir hóp­inn vilja koma mál­efnum hóps­ins á dag­skrá í sam­fé­lag­inu. „Það eru allir að díla við eitt­hvað eða þekkja ein­hvern sem eru að díla við eitt­hvað,“ sgeir hún. „Þetta verður fyrsta góð­gerð­ar­kvöld hóps­ins en hóp­ur­inn stefnir á að halda fleiri af slíku tagi í fram­tíð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár