Jón Kalman blandar sér í umræður um hina umdeildu Piu Kjærsgaard

Rit­höf­und­ur­inn Jón Kalman segir í pistli í dönskum miðli að ekki sé hægt að líta fram hjá þeim fas­isma sem læð­ist aftan að hinum vest­ræna heimi og telur að for­seti Alþingis eigi að biðj­ast afsök­unar á að hafa boðið Piu Kjærs­gaard til Íslands.

Pia Kjærsgaard og Jón Kalman
Pia Kjærs­gaard og Jón Kalman Mynd: Samsett mynd: EPA og aðsend mynd

Jón Kalman Stef­áns­son rit­höf­undur segir ákvörðun Stein­gríms J. Sig­fús­sonar for­seta Alþingis, að hafa boðið Piu Kjærs­gaard að ávarpa hátíð­ar­fund Alþingis, klaufa­lega og ætti hann að biðj­ast afsök­unar, segja af sér og leyfa öðrum að taka við.

Þetta kemur fram í pistli sem Jón skrifar í danska blaðið Information og birt­ist í dag en Kvenna­blaðið greindi fyrst frá hér á landi.

Miklar umræður spruttu upp í kjöl­far komu Kjærs­gaard til lands­ins þegar hún hélt ávarp á hátíð­ar­fundi Alþingis á Þing­völlum þann 18. júlí síð­ast­lið­inn. Margir gagn­rýndu aðkomu hennar og ákváðu Píratar til að mynda að snið­ganga þjóð­fund­inn og gekk þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Helga Vala Helga­dóttir, af fund­inum þegar Kjærs­gaard tók til máls.

Jón segir í grein sinni að Íslend­ingar standi frammi fyrir þeirri stað­reynd að þeir geta ekki litið í hina átt­ina á meðan fas­ismi læð­ist aftan að Evr­ópu­búum. Hann ber saman stjórn­mála­skoð­anir Kjærs­gaard við aðferða­fræði Donalds Trump í Banda­ríkj­unum og Marine Le Pen í Frakk­landi. Hann segir jafn­framt að stjórn­mála­menn eins og Kjærs­gaard bjóði upp á ein­faldar lausnir við flóknum vanda­málum eins og fyrr­nefnd skoð­ana­systk­ini.

Hann spyr sig hvort við eigum að sætta okkur við það að fas­ismi herji nú á hinn vest­ræna heim dul­bú­inn með grímu lýð­ræðis sem býður upp á fram­tíð þar sem hatur og umburð­ar­leysi gagn­vart öðrum skoð­unum kemur í stað­inn fyrir sam­ræðu og leit eftir sam­kennd.

Stein­grímur J. Sig­fús­son sendi frá sér til­kynn­ingu þann 19. júlí síð­ast­lið­inn þar sem hann sagð­ist harmar að heim­sókn danska þing­for­set­ans hefði verið notuð til að varpa skugga á hátíð­ar­höldin og sagð­ist hann leyfa sér að trúa því að það væri minni­hluta­sjón­ar­mið að við­eig­andi sé að sýna danska þing­for­set­anum óvirð­ingu þegar hann sækir Íslend­inga heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóð­þings­ins og dönsku þjóð­ar­inn­ar.

Guð­mundur Andri Thorsson, rit­höf­undur og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, skrif­aði einnig gagn­rýn­inn pistil vegna komu Kjærs­gaard til lands­ins sem bar tit­il­inn „Um kurt­eisi“ og birt­ist fyrst á Kjarn­anum. Dönsk þýð­ing pistils­ins birt­ist svo í Information, ásamt skýr­ingu á orð­inu „Stórdan­i“ sem á að lýsa hroka­fullu við­móti Dana í garð Íslend­inga.

Kjærs­gaard sagði í kjöl­farið skrif Guð­mundar Andra lykta af hræsni, móð­ur­sýki og „ís­lenskri minni­mátt­ar­kennd.“ Guð­mundur svar­aði gagn­rýn­inni og sagði hana byggj­ast á sýn Stórdan­ans á Íslend­inga.

Kjarninn fjall­aði um Piu Kjærs­gaard þegar umræð­urnar spruttu upp vegna komu hennar hingað til lands. Hún er einn stofn­enda Danska þjóð­ar­flokks­ins og leiddi flokk­inn á árunum 1995 til 2012. Hún er einn þekkt­asti stjórn­mála­maður í Dan­mörku í dag og hefur talað hart gegn fjöl­menn­ingu og inn­flytj­endum og íslam sér­stak­lega.

Árið 2001 skrif­aði Kjærs­gaard í frétta­bréf flokk­sins að múslimar væru lygar­ar, svindl­arar og svik­ar­ar. Hún var kærð fyrir þessi ummæli en ekki ákærð af yfir­völd­um. Ári síðar var hún sektuð fyrir að hóta konu með pipar­úða, sem að auki var brot gegn dönskum vopna­lög­um. Kjærs­gaard sagði sér til varnar að hún hafi upp­lifað sér ógnað og tal­aði í kjöl­farið fyrir breyt­ingu á lög­un­um, svo eitt­hvað af afrekum hennar séu nefnd. Þá hefur hún beitt sér fyrir því að lokað sé fyrir útsend­ingar arab­ískra sjón­varps­stöðva í Dan­mörku, þar sem þær flyttu hat­ursá­róður og vildi að öllum inn­flytj­endum sem gerst hefðu brot­legir við dönsk lög yrði vísað úr landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár