Eiginkona olíuforstjóra hafnaði handskrifaðri ávísun upp á milljarð dala

Harold Hamm, forstjóri olíuyrirtækisins Continental Resources, er ríkur maður. Í október 2014 var auður hans er metinn á 18,7 milljarði dala, um 2.422 milljarða króna. Það setti hann í 30. sæti yfir ríkustu menn Banda­ríkjanna og 76. sæti yfir ríkustu menn heims.

Harold Hamm.

Harold Hamm.
Harold Hamm.

Ljóst er að sá auður hefur eitthvað skroppið saman á síðustu mánuðum samhliða falli á heims­markaðs­verði á olíu.
Í nóvember skildi Hamm, sem verður sjötugur á þessu ári, við eiginkonu sína til 26 ára, Sue Ann Arnall. Þegar mikil auðævi eru undir í hjóna­bandi sem staðið hefur í svo langan tíma gengur oft erfiðlega að skipta auðnum á milli hjónanna. Það er tilfellið í skilnaði Hamm og Arnall.

Í gær birti frétta­stofan CNBC Twitter-færslu af hand­skrifaðri ávísun sem Hamm bauð Arnall til þess að ljúka eignar­skiptum þeirra á milli. Færsluna má sjá hér að neðan:

Harold Hamm's ex-wife has rejected a $974,790,317.77 hand-written divorce check. http://t.co/aPJb3pqY62 pic.twitter.com/KtJlg6BdRl

— CNBC (@CNBC) January 7, 2015

Samkvæmt ávísuninni, sem er dagsett síðastliðinn mánudag, bauð Hamm fyrrum eiginkonu sinni 974.790.317,77 dali, eða um 126,2 milljarða króna. Arnall hafnaði tilboðinu, sem er upp á rúmlega fimm prósent af ætluðum auð Hamm líkt og hann var í október í fyrra. Hún vill fá hærri upphæð frá fyrrum eigin­manni sínum.
Þetta staðfesti lögmaður hennar í tölvu­pósti til CNBC.

Auður Hamm hefur likast til dregist mjög saman síðustu mánuði. Hann á 68 prósent hlut í Continental Resources, sem bæði leitar að og vinnur olíu. Í haust var gengi bréfa í félaginu um 60 dalir á hlut. Síðasta skráða gengi í gær var 33,6 dalir á hlut og gengið því nálægt helmingast í kjölfar falls á heims­markaðs­verði á olíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár