Jay Z kaupir einn stærsta samkeppnisaðila Spotify

Rapparinn og viðskipta­jöfurinn Jay Z hefur keypt fyrir­tækið sem stendur að WiMP-tónlistar­veitunni. Verð­miðinn var 56 milljónir dala, um 7,5 milljarða króna. WiMP rekur sambærilega þjónustu og Spotify og er einn helsti samkeppnis­aðili þess þegar kemur að streymi­þjónustu fyrir tónlist. Frá þessu er greint í Financial Times.

WiMP býður upp á um 25 milljónir laga og um 75 þúsund tónlistar­myndbönd. Fyrir­tækið er með yfir hálfa milljón áskrifendur í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Þýska­landi og Póllandi. Það á enn töluvert í land með að ná Spotify sem býður upp á þjónustu sína í 58 löndum, er með yfir 15 milljónir borgandi viðskipta­vini og um 45 milljónir til viðbótar sem notast við ókeypis þjónustu fyrir­tækisins.

Ekki fyrsti rapparinn í streymisgeiranum


Móð­ur­fé­lag WiMP heitir Aspiro og er með höf­uð­stöðvar í Svíþjóð. Jay Z er að kaupa það í gegnum fyr­ir­tækið Project Panther Bidco. Hann er ekki fyrsti þekkti rapp­ar­inn sem hellir sér út í streym­is­við­skipti. Dr. Dre stofn­aði heyrn­ar­tóla- og tón­list­ar­streym­is­fyr­ir­tækið Beats.

Hann seldi það síðan til Apple í maí síðastliðnum á þrjá milljarða dali, um 400 milljarða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár