„Uggvekjandi tilhugsun að lögreglan fái ótakmarkaðan aðgang að sálfræðigögnum viðkvæmra einstaklinga“

Tvenn samtök gagnrýna tiltekin atriði í tillögum þingmanna­nefndar um útlend­ingamál sem starfaði undir forystu Óttars Proppé. Varað er við því að lögregla fái of greiðan aðgang að persónu­upplýsingum. Fyrr á þessu ári komst Persónu­vernd að þeirri niður­stöðu að lögregla hefði brotið persónu­vernd­arlög við meðferð upplýsinga um hælis­leitendur.

Samtökin No Borders Iceland og Ekki fleiri brott­vísanir gagnrýna hugmyndir þess efnis að lögregla fái aðgang að persónu­mati sérfræðinga á umsækjendum um alþjóð­lega vernd á Íslandi. „Það er uggvekjandi tilhugsun að lögreglan fái ótakmarkaðan aðgang að sálfræði­gögnum viðkvæmra einstaklinga,“ segir í umsögn samtak­anna um drög að frumvarpi til nýrra útlendinga­laga sem þver­pólitísk þingmanna­nefnd undir forystu Óttars Proppé kynnti þann 24. ágúst síðastliðinn.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár