„Við verðum bara að segja eins og er að auðvitað tekur þetta á“

Þing­maður Vinstri grænna segir að ekki þurfi að koma á óvart að hún hafi greitt atkvæði með van­traust­s­til­lögu á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra í síð­ustu viku og að hún vilji ekki spá fyrir um það hvort rík­is­stjórn­ar­sam­starfið haldi út kjör­tíma­bilið.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG, segir að ekki þurfi að koma neinum á óvart að hún hafi greitt atkvæði með van­traust­s­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar á Sigríði Á. Andersen í síð­ustu viku. Þetta kom fram í Víg­lín­unni á Stöð 2 um helg­ina.

„Við verðum bara að segja eins og er að auð­vitað tekur þetta á. Auðvitað tekur það á þegar tveir þing­menn í þing­flokki eru á annarri línu en aðrir þing­menn og við þurfum bara að horfast í augu við það og ræða það opin­skátt,“ segir hún þegar hún er spurð út í and­rúms­loftið í flokknum. Hún sé aftur á móti ekki sam­mála því að ástæða sé fyrir því að kanna stöðu hennar sér­stak­lega, eða stöðu Andrésar Inga Jóns­sonar sem einnig greiddi atkvæði með til­lög­unni.

Hún seg­ist ekki ætla að færa sig um set og að hún ætli sér að halda áfram að vera í Vinsti grænum. Hún styðji Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann flokks­ins, en áskilji sér rétt til að kjósa eftir sinni sann­fær­ingu í ákveðnum málum eins og í þessu til­felli.

Staða Sigríðar viðkvæm

„Þegar ég útskýrði mína afstöðu gagn­vart þessu rík­is­stjórn­ar­sam­starfi þá var Sigríður og hennar emb­ætt­is­færslur ein af þeim ástæðum sem ég til­tók sem voru þess vald­andi að ég greiddi gegn rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu,“ segir Rósa. Hún segir jafn­framt að staða Sigríðar sé gríð­ar­lega við­kvæm.

Hún telur að þing­menn ættu að temja sér það almennt að segja ekki eitt í dag og annað á morgun. „Við eigum að vera sam­kvæm sjálfum okkur í póli­tík­inni og ég er að reyna það. Þetta rímar full­kom­lega við mínar áherslur á þing­inu í júní síð­ast­liðnum,“ bætir hún við.

Rósa seg­ist treysta ráð­herrum VG fylli­lega, enda hljómi fyr­ir­ætl­anir þeirra í sínum mála­flokkum vel, og muni hún styðja þær því þær séu góðar. „En ég er búin að útskýra mína afstöðu gagn­vart þessu stjórn­ar­sam­starfi. Ég sagði hér í nóv­em­ber og des­em­ber að ég teldi gott fyrir íslenska kjós­endur að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengi frí frá völdum,“ segir hún. 

Hvernig eiga vinnubrögðin að vera?

Rósa telur að í ljósi atburða síð­ustu viku þá þurfi þing­menn að velta því fyrir sér hvernig vinnu­brögð þeir vilji iðka í íslenskri póli­tík. „Það hefur verið mikið ákall um ný vinnu­brögð hér frá hruni. Þau áköll komu líka frá Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis og ég held að þetta sé mjög alvar­leg áminn­ing fyrir okkur að fara eftir þeim skýru línum sem þar komu fram og hlusta og hlýða á það ákall sem hefur verið í sam­fé­lag­inu um ný vinnu­brögð,“ segir hún.

Hún telur jafn­framt að þing­mönnum beri að kjósa sam­kvæmt sann­fær­ingu sinni og að öllum þing­mönnum sé hollt að íhuga þau gildi sem þeir eiga að starfa eftir.

Rósa vill ekki spá fyrir um það hvort rík­is­stjórnin muni halda út kjör­tíma­bilið. Hún segir að mikil áskorun felist í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu, þ.e. að leiða saman flokka á sitt hvorum ásnum. Það sé mikið og krefj­andi verk­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár