...og eitt kíló margarín!

Margir, að bakara­drengnum kannski undan­skildum, kunna piparköku­sönginn úr Dýrunum í Hálsa­skógi, og um leið líka uppskriftina þar sem meðal annars er notað eitt kíló margarín. Ef bakara­meistarinn og bakara­drengurinn þyrftu að bregða sér í búð hér í Danmörku til að kaupa í baksturinn myndu þeir líklega klóra sér í kollinum þegar kæmi að margaríninu. Í hillum danskra verslana, eins reyndar í öðrum ESB ríkjum, má margarín nefnilega ekki heita margarín lengur nema fitu­innihald sé minnst 80 prósent og mest 90 prósent. Þetta uppfyllir það sem almennt er kallað margarín ekki.

Margarínið, eða smjör­líkið eins og við köllum það, á sér annars merkilega sögu. Franskur efna­fræðingur, Hippolyte Megé-Mouriés, hafði fundið það upp, að skipan Napóleons III árið 1869, átti að koma í staðinn fyrir smjör (sem var dýrt) handa hernum. Margarínið kom á markaðinn í Danmörku 1883, Danir tóku því fagnandi og urðu á skömmum tíma sú þjóð veraldar sem hesthúsaði mestu af þessari nýjung. Danska margarínið samanstóð einkum af hvallýsi og nautatólg. Læknar og næringar­fræðingar mæltu með margaríninu, það var orkuríkt og ódýrt. Næringar­skortur var algengur og þarna voru í boði ódýrar hita­einingar. Margarínneysla Dana minnkaði á árum síðari heims­styrjaldar en jókst svo hratt eftir að stríðinu lauk.

Svo komu næringarfræðingarnir


Á sjötta ára­tugnum fóru að koma fram efa­semdir um margar­ínið. Nær­ing­ar­fræð­ingar fara að tala um trans­fitu­sýrur, óholla fitu og nær­ing­ar­lausar hita­ein­ingar. Það var líka á þessum tíma að nær­ing­ar­skort­ur­inn hvarf og annað vanda­mál kom í hans stað: of margar hita­ein­ingar og með þeim of mörg kíló. Frá árinu 1960 hefur margar­ínn­eysla Dana farið minnk­andi ár frá ári þrátt fyrir að komið hafi á mark­að­inn alls kyns vítamín­bætt plöntu­margarín sem nær­ing­ar­fræð­ingar töldu mun holl­ara og ekki jafn ríkt af hita­ein­ingum. Nýleg könnun sýndi að Danir sem eru eldri en 55 ára borða tvisvar sinnum meira margarín en þeir sem eru yngri en 35 ára. Íbúar Kaup­manna­hafn­ar­svæð­is­ins og Austur-Jótlands nota minnst margarín.

Margarínreglugerð ESB


Árið 2007 setti Evr­ópu­sam­bandið reglu­gerð um margarín og sam­kvæmt henni, eins og áður var sagt, upp­fyllir það sem fyrrum var kallað margarín ekki kröf­urnar um fitu­inni­hald. Í dönskum versl­unum eru ennþá í hill­unum stykki, sem eru alveg eins og gömlu margar­ín­stykkin, mun­ur­inn er bara sá að orðið margarín (marg­ar­ine) er bann­orð. Þess vegna stendur á sumum stykkj­unum STEGE.. og á öðrum BAGE.. og kaup­endur verða sjálfir að geta sér til um inni­haldið. Neyslan á margar­íni hefur dreg­ist saman um helm­ing á und­an­förnum 20 árum og minnkar stöðugt. Plöntu­olía og smjör hefur komið í stað­inn og ekki er útlit fyrir að margar­ínið eigi eftir að fá „comeback.“

ESB reglu­gerðin bannar ekki margarín í söng­textum. Það geta þeir huggað sig við bakara­meistarinn og bakara­drengurinn í Hálsa­skógi hvað sem þeir setja svo í pipar­kökurnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár