Auður Jónsdóttir sýknuð í Landsrétti

Lands­réttur staðfesti í dag dóm Héraðs­dóms í meiðyrða­máli gegn Auði Jóns­dóttur rithöfundi.

Auður Jónsdóttir eftir uppkvaðningu dómsins í lok janúar síðastliðins.
Auður Jóns­dóttir eftir upp­kvaðn­ingu dóms­ins í lok jan­úar síð­ast­lið­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Lands­réttur staðfesti í dag dóm Héraðs­dóms en Auður Jóns­dóttir rit- og pistla­höfundur var í janúar síðastliðnum sýknuð í meiðyrða­máli sem Þórarinn Jónasson, land­eigandi í Laxnesi, oft kallaður Póri í Laxnesi, höfðaði á hendur henni.

Málið var höfðað vegna aðsendrar greinar sem Auður birti á Kjarnanum í júní árið 2016. Í greininni, sem var stuðnings­grein fyrir framboð Andra Snæs Magna­sonar til forseta Íslands, var meðal annars fjallað um umhverfismál í Mosfells­dalnum, þar sem Auður ólst upp.

Meðal þess sem Þórarinn gerði kröfu um var að ummæli Auðar um dýraníð og náttúruníð á svæðinu væru dæmd dauð og ómerk sem og fleiri ummæli eins og : „Körlum og kerlingum eins og Póra í Laxnessi sem eygja ekki náttúruna heldur bara peninga. Það sem hefur lifað og dafnað í þúsundir ára er skemmt á auga­bragði svo firrt fólk geti keypt sér nýtt sófasett eða farið í skemmtisiglingu, gott ef ekki stofnað póstkassa­fyrirtæki á suðrænni eyju og sent þangað féð sem ætti mér réttu að vera burðastoð samfélagsins.“

Þá varð gerð krafa um að Auður yrði dæmd til refsingar fyrir að hafa viðhaft og birt opinber­lega á vefmiðli Kjarnans ummælin og að greiða eina milljón króna í miska­bætur með dráttar­vöxtum, hálfa milljón fyrir birtingu forsendna og niður­stöðu dóms í málinu í dagblaði og tveimur vefmiðlum auk máls­kostnaðar Þórarins.

Auður krafðist þess að hún yrði sýknuð af öllum kröfum og að Þórarinn verði dæmdur til að greiða máls­kostnað hennar en honum var gert að greiða henni eina millj­ón króna í máls­kostnað.

Hægt er að lesa dóm Lands­réttar

hér

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár