Virðingarleysi að kalla forsetaframbjóðendur trúðasýningu

Jóni Gnarr finnst skemmti­legt að mik­ill fjöldi fólks sé að bjóða sig fram til for­seta. Þar sjá­ist þver­snið af þjóð­fé­lag­inu. Sumt fólk hafi meira að segja náð að búa sér til feril úr því að vera alltaf að bjóða sig fram til for­seta.

Vill verða forseti
Vill verða for­seti Jón Gnarr á Þing­völlum ásamt eig­in­konu sinni Jógu og hund­inum Klaka. Mynd: Baldur Kristjánsson

„Mér hefur þótt skemmti­legt þegar fólk er að bjóða sig fram. Sumt fólk hefur náð að búa sér til feril úr því að vera alltaf að bjóða sig fram til for­seta, og oft­ast með mjög skemmti­legum hætti. Mér finnst allt í lagi að sem flest fólk stígi fram og fjöl­breytnin sé mikil og breiddin sé mikil.“ Þetta segir Jón Gnarr, sem í vik­unni bauð sig fram til for­seta, aðspurður um hvort honum finn­ist að fyr­ir­komu­lagið í kringum for­seta­fram­boð eigi að vera með öðrum hætti. 

Á sjö­unda tug ein­stak­linga eru sem stendur að safna með­mælum til að bjóða sig fram til for­seta, af mis­mik­illi alvöru, en til þess að fram­boð telj­ist gilt þarf fram­bjóð­andi að fá 1.500 með­mæl­endur fyrir 26. apríl, þegar fram­boðs­frestur rennur út. Sá fjöldi hefur hald­ist óbreyttur frá því í for­seta­kosn­ing­unum 1952, þegar íbúar lands­ins voru tæp­lega 147 þús­und, og fram til dags­ins í dag, þegar …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Mér finnst að það þurfi að vera fleiri meðmælendur til að geta boðið sig fram. Við erum orðnir miklu fleiri Íslendingar síðan 1952. Það mætti vera um 7000 meðmælendur til að geta verið í framboði. 60 manns í framboði er allt of mikið. Það eru margir góðir frambjóðendur sem við höfum kost á og mættu Ameríkanar taka okkur til fyrirmyndar í því. Að þeim detti aðeins Trump í hug er eingöngu vegna þess að hann er svo opinskár með útlendingahatur sitt. Vinátta hans við putin veldur mér áhyggjum og er það eingöngu vegna fjárfestinga hans í Rússlandi. Ég væri til í að sjá varaforseta Bandaríkjunum ( Kamala Harris) í framboði þar.
    0
  • Inga Björk Sveinsdóttir skrifaði
    Jón Sigurðsson var forseti Alþingis
    1
  • Volodymyr Zelenskyy núverandi forseti og þjóðhetja Úkraínu er fyrrum leikari. Sýnist hann bara vera að standa sig nokkuð vel, ekki satt? Kannski hann Jón Gnarr geti það bara líka!
    0
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Nei Jon hver stjornaði borginni meðan þu varst borgarstjori ef eg man rett sagðir þu að þu værir bara þarna vegna peninganna ef þetta er rangt bið eg þig afsökunar.
    Ef þu verður forseti lyðveldisins skal eg vera bilstjorinn þinn fyrir ekkert eða þar um bil.
    0
  • ÆS
    Ævar Sigdórsson skrifaði
    Er yfirtrúður þessa lands búinn að skifta um yfirfrakka? og það áður en Sigurjón Kjartansson hefur náð að gala þrisvar?
    -8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakjör 2024

InnlentForsetakjör 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakjör 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár