Það er fáránlega dýrt að fljúga „Air Force One“

Bandarískir skatt­greiðendur þurfa að punga út hátt í 207 þúsund Bandaríkja­dölum (ríflega 27 milljónum íslenskra króna) fyrir hverja klukku­stund á meðan frægasta flugvél heims er á flugi. Hér er að sjálfsögðu átt við hina heims­frægu Air Force One, eða farþega­þotu forseta Banda­ríkjanna. Frétta­miðillinn Business Insider segir frá málinu.

Inni í upphæðinni er kostnaður við eldsneytis­kaup, aðföng og viðhald samkvæmt skriflegu svari frá bandaríska flug­hernum við fyrir­spurn Judicial Watch.

Barack Obama hefur ferðast meira út fyrir landamæri Banda­ríkjanna en nokkur annar forseti í sögu þjóðarinnar, og það með dýrustu forseta­flugvél sem ríkið hefur nokkurn tímann rekið.

Þegar Bandaríkja­forseti ferðast með Air Force One er sjaldnast rauði dregillinn langt undan.

Þegar Bandaríkjaforseti ferðast með Air Force One er sjaldnast rauði dregillinn langt undan.
Þegar Banda­ríkja­for­seti ferð­ast með Air Force One er sjaldn­ast rauði dreg­ill­inn langt undan.

Í umfjöllun Business Insider eru tiltekin nokkur dæmi um ferðalög forsetans og hvað þau kostuðu bandaríska skatt­greiðendur. Þar kemur fram að ferðalög Obama til Westchester í New York ríki, og til Providence á Rhode Island á síðasta ári hafi kostað skatt­greiðendur ríflega 527 þúsund Bandaríkja­dali, eða tæpar 70 milljónir íslenskra króna.

Þá er greint frá því að ferðalag Obama til Belfast og Dublin dagana 17. til 19. júní árið 2013 hafi kostað bandaríska skatt­greiðendur tæpar átta milljónir Bandaríkja­dala, eða röskan milljarð íslenskra króna.

Samkvæmt umfjöllun Business Insider hefur Obama heimsótt öll nema þrjú ríki Banda­ríkjanna á meðan hann hefur setið á forseta­stóli. Samkvæmt umfjöllun dagblaðsins The Washington Post, eru Bill Clinton og George H.W. Bush einu forsetarnir til að heimsækja öll 50 ríki Banda­ríkjanna á síðustu 38 árum. Obama hefur hins vegar uppi áform um að verða ekki eftir­bátur þeirra.

Forseta­flugvélin, sem er á þremur hæðum, er meðal annars útbúin fundar­herbergi, borðstofu, íbúð fyrir forsetann, skrif­stofum fyrir starfs­fólk, lækna­stofu (læknir flýgur alltaf með flug­vélinni), aðstöðu fyrir blaðamenn og eldhúsi sem getur reitt fram mat fyrir hundrað manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár