Bud Light-eyðslan stendur undir íslenska ríkinu í eitt og hálft ár

Brugg­risinn Anheuser-Busch InBev býr til þrjá af fimm vinsælustu bjórum Banda­ríkjanna, Bud Light, Budweiser og Natural Light. Óhætt er að segja að Bandaríkja­menn og ferðamenn sem sækja landið heim drekki mikið af Bud Light. Hann er lang­vinsælasti bjórinn, sé mið tekið af upplýsingum sem fram koma í skýrslu markaðs­rannsókna­fyrir­tækisins IRi. Árið 2012, sem eru síðustu nákvæmu tölur um markaðinn, seldist Bud Light fyrir 5,9 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur 760 milljörðum króna. Það er upphæð sem dugar til þess að standa undir öllum skuld­bindingum íslenska ríkisins í næstum eitt og hálft ár að frátöldum um 80 milljarða vaxta­kostnaði, sé mið tekið af fjárlögum ársins 2015. Næst vinsælasti bjórinn, Coors Light, seldist fyrir 2,3 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega 300 milljörðum króna.

Bjór­markaðurinn bandaríski er risa­vaxinn. Íbúar landsins eru tæplega 350 milljónir að tölu og síðan sækja landið heim um 70 milljónir ferða­manna á ári, samkvæmt tölum Alþjóða­bankans.

Lista yfir vinsælustu bjór­tegundir Banda­ríkjanna má sjá hér að neðan.

Mest seldi bjór Banda­ríkj­anna Bjór­teg­und og sölu­að­ili Sala á ári

(Árið 2012)

Hlutfallsleg breyting milli ára




1

Bud Light
(Anheuser-Busch InBev )
$5,9 ma. dala.
+ 0.4%




2

Coors Light
(Coors Brewing Company)
$2,3 ma. dala.
+ 4.4%




3

Budweiser
(Anheuser-Busch InBev )
$2,1 ma. dala.
- 4.8%




4

Miller Light
(Miller Brewing Company)
$1,9 ma. dala.
- 0.3%




5

Natural Light
(Anheuser-Busch InBev )
$1,1 ma. dala.
- 3.0%


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár