Dögun kvartar undan þöggun

Fram­kvæmdaráð flokksins er óánægt með að aðrir miðlar en Mbl.is fjalli ekki um ályktanir sem Dögun sendir frá sér. „Dögun hvetur blaðamenn til að fara betur með þær lýðræðis­legu skyldur sem þeir hafa,“ segir í frétta­tilkynningu.

Helga Þórðardóttir
Helga Þórð­ar­dóttir for­maður Dögunar Mynd: Dögun

Framkvæmdaráð Dögunar telur að flokkurinn sé beittur þöggun í fjöl­miðlum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birtist á vef flokksins um helgina. „Það er deginum ljósara að fjöl­miðlar hunsa flest allar ályktanir og frétta­tilkynningar frá Dögun, stjórnmála­samtökum um réttlæti, sanngirni og lýðræði. Þó að einum frétta­miðli undan­skildum, netmiðlinum Mbl.is,“ segir þar. Er fundið að því að aðrir fjöl­miðlar en Mbl.is hafi ekki fjallað um landsfund flokksins. Í ljósi þessa hyggist flokkurinn  setja á laggirnar eigin frétta­veitu, netsjónvarp, og er stefnt að útsendingum á fyrsta ársfjórðungi 2016. „Dögun hvetur blaðamenn til að fara betur með þær lýðræðis­legu skyldur sem þeir hafa,“ segir í lok tilkynningarinnar.

Dögun bauð fram í síðustu þing­kosningum en náði ekki inn þingmanni. Samkvæmt lögum flokksins er tilgangur hans að „stuðla að betra samfélagi, sem hefur umburðar­lyndi, réttlæti, heiðar­leika, siðgæði og lýðræði að leiðar­ljósi. Samfélagi sem byggir á virkni og ábyrgð þegnanna og jafnræði allra, óháð aldri, búsetu, kyni, efnahag, kynþætti, trúar­brögðum, fötlun, kynhneigð, stöðu eða uppruna.” Í framkvæmda­ráði Dögunar sitja Sigríður Fossberg Thorlacius, Ragnhildur L. Guðmunds­dóttir, Björgvin Vídalín, Baldvin Björgvinsson og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson. Formaður flokksins er Helga Þórðar­dóttir og vara­formaður Sigurður Haraldsson. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár