347 látnir vegna jarðskjálfta í Indónesíu

Yfirvöld í Indónesíu telja nú að nær 350 manns hafa látist í jarð­skjálftanum sem reið þar yfir síðastliðinn sunnudag.

Leitað að fórnarlömbum jarðskjálftans á Lombok-eyju.
Leitað að fórn­ar­lömbum jarð­skjálft­ans á Lombok-eyju. Mynd: EPA

Fjöldi skráðra dauðsfalla vegna jarð­skjálfta á Lombok-eyju í Indónesíu telur nú 347 manns, samkvæmt ríkis­miðlinum þar í landi, Antara. CNN greindi fyrst frá. 

Jarð­skjálftinn, sem reið yfir eyjuna síðastliðinn sunnudag, náði 6,9 stigum á Richter og var skæðastur á norður­hluta eyjunnar. Með nýjustu tölum stóreykst áætlað manntjón af skjálftanum, en opinberar tölur höfðu áður sagt frá 105 dauðsföllum vegna hans.

Um 200 þúsundir manna lifa í norður­hluta Lombok-eyjar, en talið er að um 165 þúsundir manna hafi þurft að yfirgefa heimili sín vegna skjálftans. Þar af hafa allavega 347 manns látist og 1.447 manns til viðbótar slasast. Samkvæmt frétt CNN hefur um 80% bygginganna á jarð­skjálfta­svæðinu eyðilagst.

Jarð­skjálfta­svæðið er rétt hjá Gili eyjum, sem er vinsæll ferðamanna­staður í Indónesíu. Þar hafi tvö þúsund ferðamenn verið á meðan á skjálftanum stóð. Allir ferða­mennirnir hafa nú verið fluttir burt af eyjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár