Fjallaði um siðbót Lúthers, skaut á RÚV og sagðist vona að Katrín talaði um „fleira en loftslagsmál“

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, kom víða við í jóm­frú­ar­ræðu sinni. „Allt tal í kosn­inga­bar­átt­unni um að gefa þeim frí var hljóm [sic] eitt,“ sagði hann.

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, gerði sið­bót­ina og Martein Lúther að umtals­efni í jóm­frú­ar­ræðu sinni á Alþingi í kvöld, skaut á Rík­is­út­varpið og sagð­ist vona að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra tal­aði um „fleira en lofts­lags­mál“. 

Sið­bóta­mað­ur­innMarteinn Lúther (10. nóv­em­ber 1483 – 18. febr­úar 1546)

„Um þessar mundir eru 500 ár síðan sið­bótin leit dags­ins ljós,“ sagði Birgir og full­yrti að sam­trygg­ingin og vel­ferðin ættu upp­runa sinn í sið­bót­inni og að sama skapi heil­brigð­is­þjón­usta og aðstoð til handa fátækum. 

„Upphafið að þessu öllu saman var hand­skrif­aður miði, festur á kirkju­dyr í Þýska­landi. Í dag myndi t.d. duga skammt að setja miða á dyr fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og biðja hæst­virtan fjár­mála­ráð­herra um að leyna nú ekki neinum upp­lýs­ingum sem gætu sprengt nýju rík­is­stjórn­ina,“ sagði Birgir.

Svo vék hann tal­inu að fjöl­miðlum:

„Við höfum fjöl­miðla sem Lúther hafði ekki. Best er að láta fjöl­miðla sjá um þessi mál. En fjöl­miðlar mega ekki fara í mann­grein­ar­á­lit. Þeir mega ekki fara neinum silki­hönskum um rík­is­stjórn­ina þó svo Vinstri grænir [sic] séu þar í for­sæti. Nú er komið kjörið tæki­færi fyrir Rík­is­út­varpið til að hrista af sér vinstri­stimp­il­inn.“ 

Ferða­menn á Aust­ur­velliEinhvern veg­inn svona gætu aðstæð­urnar hafa verið á Aust­ur­velli þegar Birgir lagði við hlustir og brá í brún.

Birgir greindi frá því að nýlega hefði hann gengið yfir Aust­ur­völl og orðið vitni að því þegar erlendir frétta­menn og ferða­menn hlýddu á yfir­lýs­ingar íslensks leið­sögu­manns um að Ísland væri „spilltasta ríkið í Evrópu“ og Alþing­is­menn margir hverjir spilltir. 

„Mér brá við þetta… það var þá land­kynn­ingin! Auðvitað er þetta ekki rétt. Spilling er t.d. land­lægt vanda­mál í ríkjum Austur-Evrópu en þetta sýnir að við sem hér erum höfum öll verk að vinna við að byggja upp traust,“ sagði Birgir.

Þá beindi hann spjótum sínum að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar og hneyksl­is­mál­inu sem varð til þess að stjórn­ar­sam­starf­inu var slitið. Rík­is­stjórnin hefði „hrökkl­ast frá völdum vegna tengsla þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra við við­kvæmt mál sem reynt var að þagga niður. Það fellur undir hug­takið spill­ing að reyna að þagga niður óþægi­leg mál,“ sagði Birgir. 

Hann vitn­aði svo í skrif Kolbeins Ótt­ars­sonar Proppé, þing­manns Vinstri grænna, sem skrif­aði pistil skömmu fyrir kosn­ingar og hvatti kjós­endur til að gefa Sjálf­stæð­is­flokknum og spill­ingu hans frí. „Hver hefði síðan trúað því að Vinstri grænir ættu eftir að tryggja þessum sama flokki áfram­hald­andi völd?“ spurði Birgir. 

Þing­mað­ur­inn benti á að Katrín Jak­obs­dóttir ætti ekki auð­velt verk fyrir höndum.

„Með­reið­ar­sveinar hennar tveir eru ekki þekktir fyrir það að hafa stuðlað að póli­tískum stöð­ug­leika. Engu að síður hafa Vinstri grænir [sic], flokkur sem var til­tölu­lega vamm­laus í íslenskum stjórn­málum, ákveðið að fórna orðstír sínum fyrir völd. Yfirgefa hug­sjónir sínar og ganga í eina sæng með gam­al­grónum valda­flokkum.“ Þá sagði Birgir með alvöru­þunga: „Allt tal í kosn­inga­bar­átt­unni um að gefa þeim frí var hljóm [sic] eitt.“

Loks hvatti hann Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra til dáða. „Það binda margir vonir við hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra og ég vona að hún tali um fleira en lofts­lags­mál. Nú hefur hún fengið tæki­færið og von­andi stendur hún undir því. Það gæti kólnað hratt undir hinni póli­tísku hjóna­sæng.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár