Gríska kauphöllin opnar í dag eftir fimm vikna lokun - Spáð að hlutabréf falli um 20 prósent

Gríska kaup­höllin opnar í dag í fyrsta sinn í fimm vikur. Hún hefur verið lokuð frá því að fjármagns­höft voru sett á í landinu og tilkynnt var um niður­stöðu þjóðar­atkvæða­greiðslu um björgunar­pakka sem Evrópu­sambandið, Seðla­banki Evrópu og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn bauð Grikk­landi gegn hörðum skilyrðum. Grikkir sögðu nei í atkvæða­greiðslunni og í kjölfarið samdi ríkis­stjórn landsins um nýjan björgunar­pakka með rýmri, en samt sem áður afar hörðum, skilyrðum.

Sérfræðingar eru nokkuð sammála um að verð á hluta­bréfum muni hrynja þegar kaup­höllin verður opnuð. Það muni endur­spegla þann viðbótar skaða sem skráð fyrirtæki í Grikk­landi hafa orðið fyrir á þeim tíma sem kaup­höllin hefur verið lokuð.

Á vef BBC er rætt við grískan sjóðs­stjóra sem er að búa sig undir allt að 20 prósent lækkun á verði hluta­bréfa.

Alls ekki komnir úr vandræðum


Þrátt fyrir að Grikkir hafi sam­þykkt björg­un­ar­pakka kröfu­hafa sinna þá ríkir enn gríð­ar­leg óvissa í land­inu. For­sæt­is­ráð­herr­ann Alexis Tsipras er að glima við mikla and­stöðu innan flokks síns, Syriza, vegna sam­komu­lags­ins, sem felur í sér mjög sárs­auka­fullar nið­ur­skurðar- og end­ur­skipu­lagn­ing­ar­að­gerðir á grískum rík­is­fjár­málum og að gríska ríkið verður að einka­væða tíu sinnum fleiri rík­is­eignir en Grikkir hafa einka­vætt hingað til, sam­kvæmt Business Insider.

Síðastliðinn miðvikudag var stjórn Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins svo upplýst um það að sjóðurinn geti ekki tekið þátt í þriðju neyðarlána­veitingunni til Grikk­lands. Ástæðan er sú að skuldir Grikkja eru svo háar og þeir hafa ekki sýnt fram á það hingað til að þeir geti framfylgt áætlunum um umbætur.

Sjóðurinn mun taka þátt í viðræðum um neyðarlána­pakkann, sem nú fara fram í Aþenu, en hann mun ekki ákveða hvort hann tekur þátt í nýjum aðgerða­pakka fyrr en eftir einhverja mánuði og mögulega ekki fyrr en á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár