Hagvöxtur í Bandaríkjunum mælist 1,5 prósent - Seðlabankinn slær á vaxtaveðmálin

Hagvöxtur í Banda­ríkjunum mældist 1,5 prósent á þriðja ársfjórðungi, töluvert undir spám, en gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði á bilinu tvö til þrjú prósent á þessu ári. Á kynningar­fundi Seðla­banka Banda­ríkjanna í dag, vegna þeirrar ákvörðunar bankans að halda vöxtum óbreyttum, kom fram að ekki væri lengur sérstak­lega horft til þess að ástand mála á mörkuðum utan Banda­ríkjanna væri óvissu háð, heldur frekar að áfram yrði metið gaum­gæfilega hvort tilefni væri til þess að hækka vextir áður en árið er úti. Efnahags­bati væri viðvarandi, þrátt fyrir að störfum fjölgi hægar nú en á sama tíma en í fyrra.

Janet Yellen, seðla­bankastjóri, hefur ítrekað sagt á þessu ári að bankinn muni hefja vaxta­hækkunar­ferli um leið og efnahags­batinn í Banda­ríkjunum bíður upp á þær aðgerðir. Í byrjun ársins sagði hún að ekki væri ólíklegt að gripið yrði til vaxta­hækkana um mitt þetta ár, en nú hefur það dregist, og hafa fjár­festar horft til þess að vextir muni ekki hækka á þessu ári, að því er fram kom í umfjöllun Wall Street Journal. Hafa margir þeirra sett háar fjárhæðir undir í afleiðu­tengdum viðskiptum, þar sem veðjað er á að vextir muni ekki hækka á þessu ári.

Seðla­bankinn gaf sterklega til kynna á fundi sínum í dag að vextir gætu hækkað í desember, á síðastu vaxtá­kvörðunar­degi ársins. Í umfjöllun Wall Street Journal segir að þetta hafi verið gert til að fæla frá spákaupmennsku­fjárfesta. Fyrir fundinn sýndu merki frá fjár­festum um þriðjungs­líkur á því að seðla­bankinn myndi hefja vaxta­hækkunar­ferilinn á þessu ári, en líkurnar ruku upp eftir fundinn, og sýndu merki á mörkuðum þá, sem mæla framtíðar­hegðun fjárfesta á markaði með vaxtaálag, að ríflega 43 prósent líkur væru nú á því að vextir hækki fyrir lok árs.

Stýri­vöxtum í Banda­ríkjunum hefur verið haldið við núllið í Banda­ríkjunum frá því um mitt ár 2008, eða í rúmlega sjö ár. Atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum hefur jafnt og þétt minnkað og er nú rúmlega fimm prósent, en fór hæst upp undir tíu prósent í byrjun árs 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár