David Carr látinn - tók viðtal við Edward Snowden kvöldið sem hann lést

David Carr, blaða­maður á New York Times, lést skyndi­lega í gær, 58 ára að aldri. Hann hneig niður í vinnunni og fannst þar um níu í gærkvöldi að staðar­tíma. Hann var úrskurðaður látinn við komuna á spítala. Blaðið greindi frá andláti hans á Twitter strax í gærkvöldi, og á forsíðu blaðsins í dag.

Breaking News: David Carr, Media Columnist for The New York Times, Is Dead at 58 http://t.co/uM7jLsiPjv

— The New York Times (@nytimes) February 13, 2015

Carr var vel þekktur blaða­maður og var meðal annars ein helsta stjarna heimildar­myndar um blaðið, Page One: Inside The New York Times, sem kom út árið 2011. Hann hóf störf hjá blaðinu árið 2002 sem viðskipta­blaðamaður og fjallaði mikið um fjölmiðla og menningu. Hann hélt síðast úti dálkinum

The Media Equation

og birtist síðasti pistill hans þar á miðvikudag.

Remembering David Carr: Here are 1,776 NYT pieces penned by David Carr. http://t.co/azGzyTQkpa pic.twitter.com/jjSESPxWKd — NYT Archives (@NYTArchives) February 13, 2015

Dean Baquet’s msg to the @nytimes newsroom about the devastating passing of David Carr. pic.twitter.com/odA6D55pPv

— Clifford Levy (@cliffordlevy) February 13, 2015

Í bókinni The Night of the Gun, sem eru æviminningar Carr og komu út árið 2008, segir hann ítarlega frá fortíð sinni sem eiturlyfja­sjúklingur og því hvernig hann náði sér á strik á ný.

Sama kvöld og hann lést stjórnaði Carr umræðum fyrir TimesTalks um myndina Citizenfour við aðal­viðfangs­efni myndarinnar, Edward Snowden, leik­stjórann Lauru Poitras og Glenn Greenwald blaðamann. Umræðurnar voru teknar upp fyrir New York Times, og má horfa á þær hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár