Bandarísk yfirvöld á eftir bankamönnum

Dómsmála­ráðuneytið bandaríska og saksókn­arar á vegum þess eru nú að undirbúa ákærur á hendur bönkum og banka­mönnum í mörgum af stærstu bönkum heimsins. Frá þessu var greint á vefsíðu New York Times í dag, eða undir­síðunni Dealbook.

Málin sem hafa verið verið lengi í rannsókn tengjast markaðs­misnotkun á gjaldeyris­markaði og er talið að spjótin beinist að miðlurum, og yfir­mönnum þeirra, fremur en framkvæmda­stjórum í efsta þrepi í skipuritinu.

Reiknað er með því að ákærur verið gefnar út áður en árið er á enda, að því er fram kemur í frétt New York Times um málið.

Á meðal banka sem rann­sakaðir hafa verið og líklegt er talið að ákærur muni beinast að eru JP Morgan, Deutsche Bank, Citigroup, Barclays og UBS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár