Misboðið fyrir hönd þeirra borgara sem hlut eiga að máli

Umboðs­maður Alþingis sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í morgun. Hann fjall­aði m.a. um bréf hans til for­sæt­is­ráð­herra vegna við­bragða Seðla­banka Íslands.

Tryggvi Gunnarsson
Tryggvi Gunn­ars­son Mynd: Skjáskot/Alþingi

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, seg­ist mis­boðið fyrir hönd þeirra borg­ara sem hlut eiga að máli vegna Sam­herj­a­máls­ins svo­kall­aðs en hann kom fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í morgun. Umfjöll­un­ar­efni fund­ar­ins var lög um gjald­eyr­is­mál og stjórn­sýslu Seðla­banka Íslands.

Umboðs­maður sendi Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra bréf þann 4. mars síð­ast­lið­inn sem birt­ist á vef­síðu hans í dag.

Í bréfi sínu til ráð­herra beinir hann sjónum sínum að bréfi Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra til Katrínar sem hann sendi þann 29. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í frétt um bréfið á vef­síðu ráðu­neyt­is­ins segir að þar sé fjallað um þá lær­dóma sem að hans mati beri að draga af reynsl­unni við fram­kvæmd gjald­eyr­is­eft­ir­lits á vegum Seðla­banka Íslands í tengslum við áform­aða sam­ein­ingu seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Fram kemur að í bréf­inu sé varpað ljósi á sum þeirra atriða sem hafi verið í umræðu í fram­haldi af áliti hans sem birt var þann 25. jan­úar síð­ast­lið­inn og grein­ar­gerð banka­ráðs seðla­bank­ans sem birt var 26. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Tryggvi telur að til­tekin ummæli í bréfi seðla­banka­stjóra og upp­lýs­ingar sem honum hafi borist eftir opin­bera birt­ingu bréfs­ins séu honum til­efni til þess að rita bréfið til Katrínar.

Hann vekur athygli á orðum seðla­banka­stjóra í bréfi hans til for­sæt­is­ráð­herr­ans um mark­mið með fram­kvæmd fjár­magns­haft­anna: „Má í því sam­bandi ekki gleyma því að aðgerðir Seðla­bank­ans höfðu tölu­verð fæl­ing­ar­á­hrif. Þetta mátti t.d. glögg­lega sjá eftir hús­leit­ina hjá Samherja þó svo ekki hafi verið hugsað út í það fyr­ir­fram, enda ekki lög­mætt sjón­ar­mið í þessu sam­hengi,“ sagði Már í bréfi sínu.

Veltir tilgangi upplýsingagjafar fyrir sér

Tryggvi seg­ist hafa fengið nán­ari upp­lýs­ingar um sam­skipti starfs­manna Seðla­banka Íslands og Rík­is­út­varps­ins í aðdrag­anda hús­leit­ar­innar eftir að greint hafi verið frá bréfi seðla­banka­stjóra á vef bank­ans. „Þessar upp­lýs­ingar gefa að mínu áliti til­efni til að kallað verði eftir hver var í raun hlutur starfs­manna gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans í að upp­lýsa starfs­mann Rík­is­út­varps­ins um hina fyr­ir­hug­uðu hús­leit. Þá tel ég þörf á að ganga eftir því við Seðla­banka Íslands hver hafi tekið ákvörðun um að veita upp­lýs­ingar og hver hafi verið aðkoma og vit­neskja yfir­stjórnar bank­ans um þessi sam­skipti við Rík­is­út­varpið,“ segir hann í bréf­inu.

Hann veltir því einnig fyrir sér hvort að baki þess­ari upp­lýs­inga­gjöf hafi legið sjón­ar­mið af því tagi sem seðla­banka­stjóri lýsir í bréfi sínu til Katrínar og vitnað var til hér að framan.

Tryggvi segir að orða­lag Más veki upp álita­mál hvaða til­gangur hafi í raun búið að baki því að upp­lýs­ingar um hús­leit­ina og birta og dreifa frétt um hana með þeim hætti sem gert var í þessu máli.

Í bréf­inu til Katrínar óskar hann eftir upp­lýs­ingum frá ráðu­neyti for­sæt­is­ráð­herra um hvort fyr­ir­hugað sé að þau atriði sem fjallað er um í bréf­inu komi til athug­unar við boð­aða athugun ráðu­neyt­is­ins. „Þetta geri ég m.a. til að geta að fengnu svari ráðu­neyt­is­ins tekið afstöðu til þess hvernig ég bregst við í til­efni af þeim upp­lýs­ingum sem mér hafa verið látnar í té undir þeirri vernd sem 18. gr. laga nr. 85/1997 hljóða um,“ segir hann.

Hann óskar eftir svari við bréf­inu sem allra fyrst eða eigi síður en 20. mars næst­kom­andi.

Hægt er að lesa bréfið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár