Samherjafólk ræður sér lögmenn

Lögmaður Samherja segir engan einstakling enn vera með réttar­stöðu sakbornings eða verið kallaðan til yfirheyrslu.

Minnst fjórir forystu­menn Samherja hafa ráðið lögmenn til að undirbúa varnir vegna ásakana á hendur fyrir­tækinu um mútubrot og skatta­undanskot.

Þetta kemur fram í Frétta­blaðinu í dag.

Í viðtali við blaðið segir Garðar Gíslason, lögmaður Samherja, að félagið sé ekki að samsama sig þeim einstaklingum sem mögulega verði til rann­sóknar vegna Samherja­málsins. „Það skal ítrekað að Samherji hefur heitið fullri samvinnu og samráði með yfir­völdum vegna þessara mála,“ segir Garðar.

Hann segir enn fremur að engir einstaklingar hafi fengið réttar­stöðu grunaðs manns í málinu, og engar skýrslu­tökur hafi farið fram.

Fram hefur komið að embætti Héraðs­saksóknara, skatt­rannsóknar­stjóra og ríkis­skattstjóra séu öll að rannsaka Samherja og ásakanir um mútu­greiðslur, skatta­undanskot og peninga­þvætti, í tengslum við starfsemi félagsins í Namibíu, sem fjallað var um Kveiki, fréttaskýringiþætti RÚV, í Stundinni og á vef Wikleaks. Al Jazeera hefur síðan boðað frekari umfjöllun og verður þáttur sýndur 1. desember, þar sem fjallað verður um Afríku­veiðar Samherja, að því er fram kemur á Youtube.

Að því er fram kemur í Frétta­blaðinu hefur Yfir­lögfræðingur Samherja, Arna Bryndís Baldvins McClure, ráðið sér lögmanna og er það Halldór Brynjar Halldórsson sem er lögmaður hennar.

Arnar Þór Stef­ánsson, hjá LEX Lögmanns­stofu, er lögmaður Egils Helga Árnasonar, sem kom að stjórnun ArcticNam, gegnum afríska lögmanns­stofu.

„Jón Óttar Ólafsson, fyrr­verandi rannsóknar­lögreglu­maður, mun hafa ráðið Svein Guðmundsson hjá Juralis. Jón Óttar var ráðgjafi hjá Samherja og er sagður hafa verið í innsta hring Namibíu­veiðanna. Þá mun Garðar Víðir Gunnarsson, lögmaður hjá LEX lögmanns­stofu, verja einstakling sem starfaði á vegum Samherja erlendis um árabil,“ segir í Frétta­blaðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár