Telja samstarf við íhaldsflokkana illskásta kostinn í erfiðri stöðu – og jafnvel dálítið spennandi

Stundin leit­aði skýr­inga á umdeildri ákvörðun Vinstri grænna.

Þingmenn og áhrifa­fólk í Vinstri grænum telja raun­hæfan mögu­leika að ná ásætt­an­legum mál­efna­samn­ingi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn, þar sem upp­bygg­ing inn­viða verði sett á odd­inn og útgjöld til sam­neysl­unnar stór­aukin. Eftir að slitn­aði upp úr við­ræð­unum við Fram­sókn­ar­flokk­inn, Sam­fylk­ing­una og Pírata er sam­starf við Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokk tal­inn ill­skásti kost­ur­inn til að tryggja póli­tískan stöð­ug­leika næstu fjögur árin þar sem upp­gang­ur­inn í efna­hags­líf­inu nýt­ist til að styrkja inn­viði og sam­fé­lags­stofn­anir. Samn­ings­staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé veik­ari en oft áður og flokk­ur­inn þannig sveigj­an­legri; gagn­kvæmt traust ríki milli Katrínar Jak­obs­dóttur og Bjarna Bene­dikts­sonar og þótt sam­starf flokk­anna sé áhættu­samt geti það orðið grund­völlur að sögu­legum sáttum og haft góð áhrif á íslensk stjórn­mál til langs tíma. 

Þetta kemur fram í sam­tölum sem Stundin hefur átt við áhrifa­fólk og þing­menn Vinstri grænna í til­raun til að leita skýr­inga á ákvörð­unum og áherslum flokks­ins í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Við­mæl­endur Stund­ar­innar gera sér grein fyrir að Vinstri grænum verði að öllum lík­indum refsað fyrir stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í næstu kosn­ingum. Engu að síður full­yrða þeir að þetta sé skásta leiðin til að tryggja fram­gang áherslu­mála flokks­ins og hafa afger­andi áhrif á sam­fé­lags­þróun næstu ára. Verk­efnið sé áhættu­samt en sumum þyki það líka lúm­skt spenn­andi.

Við­mæl­endur Stund­ar­innar sem eru áfram um stjórn­ar­sam­starfið telja löngu orðið tíma­bært að mynda rík­is­stjórn undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur. Flokk­ur­inn skuldi kjós­endum sínum raun­veru­legan árangur. Ef ekki líti út fyrir að flokk­ur­inn nái lyk­il­málum sínum fram verði mál­efna­samn­ing­ur­inn vænt­an­lega felldur af þing­flokknum eða flokks­ráði Vinstri grænna. Ólíklegt þykir þó að þetta ger­ist, enda hafi við­ræð­urnar farið vel af stað. 

Umdeild vegferð vinstriflokks

Sú ákvörðun þing­flokks VG að hefja form­legar við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn hefur vakið hörð við­brögð. Aðeins tvær vikur eru liðnar frá kosn­ingum og vart hægt að full­yrða að komin sé upp alvar­leg stjórn­ar­kreppa. Samt er stærsti vinstri­flokk­ur­inn strax far­inn að ræða rík­is­stjórn­ar­myndun við hægri­flokk sem margir á vinstri­vængnum telja óstjórn­tækan vegna spill­ing­ar­mála.

Fólk úr Pírötum og Sam­fylk­ing­unni sem Stundin hefur rætt við telur að ekki hafi verið full­reynt með við­ræður miðju- og vinstri­flokka. Vel hefði mátt halda þeim áfram ásamt Viðreisn og/eða Flokki fólks­ins. Ótti um að mynduð verði íhalds­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins sé ekki á rökum reistur, enda bendi fátt til þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vilji vinna með Mið­flokknum né að Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum þyki sam­starf við Flokk fólks­ins fýsi­legt.

Við­mæl­endur Stund­ar­innar úr VG meta stöð­una með öðrum hætti og hafa, frá því að slitn­aði upp úr fyrri við­ræð­unum, orðið æ svart­sýnni á að mögu­legt sé að mynda fjöl­flokka rík­is­stjórn frá miðju til vinstri. 

Fáum dylst að óska­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins yrði mynduð með Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokknum. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa Fram­sókn­ar­menn beitt sér mjög fyrir sam­tali þess­ara flokka allt frá kosn­ingum. Raunar er full­yrt að kostað hafi átak að fá Framsókn til að íhuga alvar­lega að fylgja Vinstri grænum inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Pírötum og Sam­fylk­ing­unni. Þar hafi hjálpað til að VG hélt alltaf mögu­leik­anum á stjórn­ar­sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn opnum.

Nokkurs pirr­ings gætir í garð Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir að hafa ekki gert slíkt hið sama, enda telur VG-fólk að með því mátt senda Fram­sókn­ar­flokknum skila­boð um að hann væri ekki ómissandi hlekkur í hugs­an­legu sam­starfi vinstri­flokka við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þetta hefði aukið lík­urnar á myndun rík­is­stjórnar VG, Fram­sóknar, Sam­fylk­ingar og Pírata. 

Telja óskhyggju að Viðreisn og Framsókn geti náð saman

Áhrifa­fólk í VG segir ósk­hyggju að láta eins og hægt sé að leiða Fram­sókn­ar­flokk­inn og Viðreisn saman inn í rík­is­stjórn. Raunar hafi óskir Sam­fylk­ing­ar­fólks um að fá Viðreisn að borð­inu í við­ræðum VG, Fram­sóknar, Pírata og Sam­fylk­ingar stuðað Fram­sókn­ar­menn og ekki hjálpað til.

Ljóst sé að aðkoma Við­reisnar að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum vinstri- og miðju­flokka hefði flækt við­ræður frekar en að styrkja þær, einkum í ljósi hægri­s­inn­aðra áherslna Við­reisnar í skatta- og rík­is­fjár­málum og fjar­lægðar Við­reisnar frá Fram­sókn­ar­flokknum og VG að því er varðar land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­mál. 

Af þessum sömu ástæðum hafi útspil Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata, þar sem þau stilltu sér upp með for­ystu­fólki Við­reisnar og buðu Vinstri grænum „annan val­kost“, ekki verið til þess fallið að auka áhuga Fram­sókn­ar­flokks­ins á sam­tali eða sam­starfi vinstri- og miðju­flokk­anna.

Eða eins og einn við­mæl­andi Stund­ar­innar orð­aði það: „Það að stilla Viðreisn upp við borðið sem þú þarft að fá Framsókn til að setj­ast við er eins og að bjóða veganista í kjöt­veislu.“ 

Í VG er það sjón­ar­mið áber­andi að í raun séu nú  fáir kostir í stöð­unni. Ef ekki verði farið í sam­starf við Fram­sókn­ar­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn sé raun­veru­leg hætta á að mynduð verði íhalds­stjórn (eða “alt-right”-stjórn) Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins.

Við­mæl­endur Stund­ar­innar úr tveimur flokkum segja að þótt stirt sé á milli flestra þing­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sig­mundar Davíðs geti Framsókn séð sér hag í því að gera vopna­hlé við Sigmund. Þá geti það orðið Fram­sókn­ar­mönnum dýr­keypt að sitja í rík­is­stjórn sem allir þrír flokk­arnir, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins, hamist á í stjórn­ar­and­stöðu. 

Oddný Harð­ar­dóttirþing­kona og fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar

Oddný Harð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er á öðru máli og full­yrðir á Facebook að hún telji að „Framsókn fari aldrei með Mið­flokknum í stjórn“.

Hún seg­ist „sann­færð um að ef Vg hefði gefið skýr skila­boð til Fram­sóknar um að sam­starf við íhaldið kæmi ekki til greina væri rík­is­stjórn síð­ustu stjórn­ar­and­stöðu að detta inn með mál­efna­samn­ingi þar sem áherslur væru á efna­hags­legan stöð­ug­leika, félags­legan stöð­ug­leika og heil­brigðan vinnu­markað ásamt lýð­ræð­isum­bótum.“ Þarna krist­all­ast allt önnur sýn á stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar heldur en birst hefur í sam­tölum Stund­ar­innar við áhrifa­fólk í Vinstri grænum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár