Tortryggni Framsóknar gagnvart Viðreisn setti strik í reikninginn

Áhugi á að bjóða Viðreisn eða Flokki fólks­ins að samn­inga­borð­inu fjar­aði út eftir sam­töl for­manna við full­trúa flokk­anna. Fram­sókn­ar­flokknum þótti 32 manna meiri­hluti of tæpur.

Tortryggni Framsóknar gagnvart Viðreisn setti strik í reikninginn

Áhyggjur Fram­sókn­ar­flokks­ins af tæpum þing­meiri­hluta fjög­urra flokka og tor­tryggni flokks­ins gagn­vart Viðreisn virð­ast vera helsta fyr­ir­staða þess að vinstri- og miðju­flokkar á Alþingi geti myndað rík­is­stjórn. 

Þetta er sú staða sem blasir við eftir að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata var slitið upp úr hádegi í dag.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur skilað for­seta umboð­inu til stjórn­ar­mynd­unar.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gefur þær skýr­ingar á við­ræðu­slit­unum að Fram­sókn­ar­mönnum hafi þótt þing­meiri­hluti þess­ara fjög­urra flokka of naumur. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, bendir hins vegar á það í við­tali við Mbl.is að á meðal ann­arra flokka hafi verið vilji til þess að breikka við­ræð­urnar og leita sam­starfs við Viðreisn. „Því höfn­uðu Framsókn og þess vegna er það óskilj­an­legt að hún noti tæpan meiri­hluta sem rök fyrir slitum,“ skrifar hann á Facebook. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar fund­aði Katrín Jak­obs­dóttir með Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­manni Við­reisnar, snemma í síð­ustu viku um hugs­an­lega aðkomu Við­reisnar að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum. Þá fund­aði Sigurður Ingi Jóhanns­son með full­trúum Flokks fólks­ins.

Eftir fund­ina virð­ist sem áhugi á aðkomu Við­reisnar og Flokks fólks­ins hafi dvínað. Á fund­inum með Þorgerði Katrínu var þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið sér­stak­lega nefnd sem eitt af áherslu­málum flokks­ins þrátt fyrir að ekki sé meiri­hluti fyrir slíkri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á Alþingi. Þótti þetta, og við­mót Við­reisn­ar­fólks almennt, ekki til marks um að flokk­ur­inn hefði raun­veru­legan áhuga á sam­starfi. Auk þess var lít­ill áhugi á því meðal full­trúa flokk­anna að fela þing­mönnum Flokks fólks­ins ráð­herra­emb­ætti eða for­mennsku í þing­nefndum.

Um svipað leyti og hugur Við­reisnar til stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna var kann­aður lýsti Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, því yfir í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 að atkvæða­greiðsla um Evr­ópu­málin væri ekki á borð­inu og yrði aldrei sam­þykkt af Framsókn í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var aðilum að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum brugðið við þetta og greindi Sigurður Ingi sér­stak­lega frá því að ummælin væru ekki sett fram með blessun hans. 

Við­mæl­endur Stund­ar­innar segja að almennt hafi aðilar að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum verið opnir fyrir því að bjóða Viðreisn að borð­inu. Þar hafi afstaða Fram­sókn­ar­flokks­ins sett strik í reikn­ing­inn auk þess sem Viðreisn hafi ekki sýnt sér­stakan áhuga á að nálg­ast flokk­ana.

Þegar Stundin ræddi við fólk sem tók þátt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum fyrr í dag töldu sumir að enn væri mögu­legt að breikka sam­talið og halda áfram við­ræðum án Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins. Nú er hins vegar orðið ljóst að Katrín ætlar að skila stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu. Haft er eftir bæði Þorgerði Katrínu og Ingu Sæland, for­manni Flokks fólks­ins, á Mbl.is að þær búist við, eða telji rök­rétt, að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fái nú umboð for­seta til að reyna myndun rík­is­stjórnar. 

Uppfært kl. 17:50
Upp­haf­lega kom fram í frétt­inni að Katrín Jak­obs­dóttir og Sigurður Ingi hefðu bæði fundað með Þorgerði Katrínu um hugs­an­lega aðkomu Við­reisnar að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Hið rétta er að Katrín ræddi við Þorgerði en Sigurður Ingi ræddi við full­trúa Flokks fólks­ins. Í kjöl­farið greindu þau full­trúum ann­arra flokka frá sam­tölum sínum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár