Hamfarasjóði komið á - „Mikið framfaramál“ segir Sigmundur Davíð

Ríkis­sjóður hefur þurft að greiða að meðaltali 456 milljónir króna á hverju ári frá árinu 2008, vegna náttúru­hamfara.

Ríkis­stjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í dag að stofnaður verði sérstakur sjóður, hamfara­sjóður, sem hafi það hlutverk að sinna forvörnum og samhæfingu verkefna á „sviði náttúruvár en verkefni á sviði forvarna verða aukin. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá stjórn­völdum.

Meðal­kostnaður ríkis­sjóðs á ári, frá árinu 2008 og til 2016, vegna hamfara nemur um 456 milljónum króna, að því er fram kemur í skýrslu stjórn­valda um viðbrögð við hamförum og samfélags­legan kostnað vegna þeirra. 

Hamfara­sjóður mun jafnframt hafa umsjón með greiðslu tiltekins kostnaðar opinberra aðila og bóta í ákveðnum takmörkuðum tilvikum vegna tjóns sem verður af völdum náttúru­hamfara.

,,Þetta er mikið framfaramál sem eykur getu samfélagsins til að takast á við náttúru­hamfarir og afleiðingar þeirra,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra.

Ákvörðunin er í samræmi við tillögur í skýrslu starfs­hóps umhverfis- og auðlinda­ráðuneytis sem skipaður var í nóvember í fyrra til að skoða fýsileika þess að til yrði sérstakur hamfara­sjóður. Starfs­hópurinn var skipaður að tillögu forsætis­ráðherra á grund­velli ákvörðunar ríkis­stjórnar í október sl. Með stofnun sjóðsins sameinast A-deild Bjargráða­sjóðs og Ofan­flóðasjóður.

Gert er ráð fyrir að hamfara­sjóður verði deilda­skiptur í forvarna- og bótasjóð. Umhverfis- og auðlinda­ráðuneytið mun vinna að framfylgd tillagna um stofnun hamfara­sjóðs á grund­velli ákvörðunar ríkis­stjórnar, segir í tilkynningu frá stjórn­völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár