Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur saman lista í dag eins og flesta aðra daga yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, að þeirra mati.


  1. Rússar gerðu loft­árásir á skotmörk í Sýrlandi í gærkvöldi á svæði sem eru undir stjórn uppreisnar­manna, sem ekki eru tengdir Íslamska ríkinu.

  2. Her Afganistans hefur aftur náð völdum í borginni Kunduz, sem talíbanar náðu á sitt vald á mánudaginn.

  3. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sakaði Ísraela um að grafa undan friðar­umleitunum Bandaríkja­manna undan­farin ár, í ræðu sinni á Allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna. Hann sagði Palestínu ekki lengur telja sig bundna af samkomu­lagi sem skrifað var undir með Ísraeal um miðjan tíunda áratug síðustu aldar.

  4. Forsætis­ráðherra Ungverja­lands, Viktor Orban, sagði einnig hjá Sameinuðu þjóðunum í gær að Evrópa verði óstöðug ef flótta­fólk heldur áfram að koma þangað.

  5. Volkswagen hefur viðurkennt að 1,2 milljónir bíla í Bretlandi séu búnir hugbúnaði sem falsar útblásturs­tölur.

  6. Felli­bylurinn Joaquin gæti haft mikil áhrif á austur­strönd Banda­ríkjanna og Bahama-eyjar um helgina.

  7. Margar sprengingar urðu í Guangxi héraði í Kína, aðeins degi eftir að sautján bréfa­sprengjur urðu að minnsta kosti sjö að bana í sama héraði. Lögreglan rannsakar málið ekki sem hryðju­verk.

  8. Tölvu­póstar sýna að hakkarar með tengsl við Rússland reyndu að minnsta kosti fimm sinnum að brjótast inn á tölvu­póstþjón Hillary Clinton meðan hún var utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna.

  9. Wal-Mart áætlar að fækka störfum í höfuð­stöðvum sínum um 500, samkvæmt frétt Wall Street Journal.

  10. Að minnsta kosti tíu milljónir fátækra einstaklinga gætu liðið matar­skort vegna öfgafulls veðurs af völdum loftslags­breytinga á næstunni, samkvæmt nýrri skýrslu Oxfam.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár