Seðlabankastjóri verði formaður fjármálaeftirlitsnefndar bankans

Alþingi ákvað, er verið var að sam­eina Seðla­bank­ann og Fjár­mála­eft­ir­litið, að láta seðla­banka­stjóra ekki leiða fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd bank­ans, m.a. vegna mögu­legrar orð­sporðs­á­hættu. Það fyr­ir­komu­lag hefur ekki reynst sér­lega vel og nú á að breyta lögum.

Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

For­sæt­is­ráðu­neytið áformar að breyta lögum um Seðla­bank­ann, á þann veg að Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri taki við for­mennsku í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd bank­ans. For­mennska í þeirri nefnd hefur verið í höndum Unnar Gunn­ars­dóttur vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­eft­ir­lits frá því Seðla­bank­inn tók við eft­ir­liti með fjár­mála­starf­semi í árs­byrjun 2020.

For­mennska í öðrum nefndum bank­ans, pen­inga­stefnu­nefnd og fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd, er einnig í höndum seðla­banka­stjór­ans í dag. Er verið var breyta lögum til þess að sam­eina Seðla­bank­anna og FME stóð sam­kvæmt fram­lögðu frum­varpi til að seðla­banka­stjóri færi einnig með for­mennsku í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd­inni, en því var breytt í með­förum Alþingis árið 2019.

Í nefnd­ar­á­liti á Alþingi á þeim tíma var breyt­ingin rök­studd þannig að með henni væri verið að reyna að draga úr orð­spors­á­hættu, sem rýrt gæti trú­verð­ug­leika Seðla­bank­ans og haft nei­kvæð áhrif á starf­semi hans á öðrum sviðum, auk þess sem þetta væri gert til að milda áhrif þeirrar miklu sam­þjöpp­unar valds sem fælist í sam­ein­ingu Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Aukið flækjustig fylgi núverandi fyrirkomulagi

Úttekt­ar­nefnd sem var skipuð í fyrra til þess að fara yfir reynsl­una af starfi nefnda Seðla­bank­ans á árunum 2020 og 2021, í kjöl­far þess að breyt­ingar voru gerðar á stjórn­kerfi bank­ans við sam­ein­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits og Seðla­banka sem tók gildi um ára­mót 2020, mælti með því að þessi breyt­ing yrði gerð.

„Seðla­banka­stjóri ætti að gegna for­mennsku í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd, eins og í hinum nefnd­unum, eins og lagt var til í upp­haf­legu frum­varpi til laga árið 2019. Mis­mun­andi for­mennska býr til flækju­stig og það gerir einnig hið marg­brotna fram­sal valds og hin lag­skipta stjórn­sýsla sem búin er til í kringum eft­ir­lits­verk­efni innan sömu stofn­un­ar­innar,“ sagði í skýrslu úttekt­ar­nefnd­ar­innar, sem for­sæt­is­ráðu­neytið er nú að bregð­ast við með fyr­ir­hug­uðum laga­breyt­ingum, sem eru til kynn­ingar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda þessa dag­ana.

Í skýrslu nefnd­ar­innar kom einnig fram að áhyggjur sem settar voru fram á þingi af orð­spors­á­hættu fyrir Seðla­bank­ann vegna setu seðla­banka­stjóra í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd virð­ist hafa verið ýktar. Í við­tölum nefnd­ar­innar við aðila innan og utan Seðla­bank­ans kom fram að Seðla­bank­inn myndi „í raun aldrei sleppa við gagn­rýni eða óánægju með fjár­mála­eft­ir­lits­starf­sem­ina þótt ákvarð­anir séu teknar án þátt­töku banka­stjór­ans“.

Vilja einnig breyta ákvæðum um ákvarðanatöku

Auk áður­nefndra breyt­inga sem varða for­mennsk­una í nefnd­inni stendur einnig til að ákvæðum laga um töku ákvarð­ana á sviði fjár­mála­eft­ir­lits verði breytt. Nánar til­tekið á að nú að fela Seðla­bank­anum að taka ákvarð­anir sem faldar eru Fjár­mála­eft­ir­lit­inu sam­kvæmt lögum og stjórn­valds­fyr­ir­mælum, en í dag gera lög ráð fyrir því að fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd taki slíkar ákvarð­anir, en geti fram­selt það vald til vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­eft­ir­lits ef ákvarð­anir telj­ast ekki meiri háttar.

Ef þetta hljómar dálítið flókið, þá er það senni­lega sökum þess að þetta er fremur flókið. Í skýrslu úttekt­ar­nefnd­ar­innar sagði að miðað við þetta marg­brotna fram­sal valds og lag­skipta stjórn­sýslu sem búin væri til í kringum eft­ir­lits­verk­efni innan sömu stofn­unar væri ekki hægt að full­yrða að réttar­ör­yggi og rétt­lát máls­með­ferð væru tryggð, og taldi nefndin að heppi­legra væri að koma í veg fyrir laga­leg álita­mál sem geti skap­ast með end­ur­bótum á lög­gjöf eða fram­kvæmd.

„Í sam­ræmi við þetta er áætlað að leggja til breyt­ingar á lögum um Seðla­banka Íslands þar sem kveðið verði á um að Seðla­banki Íslands taki ákvarð­anir sem faldar eru Fjár­mála­eft­ir­lit­inu sam­kvæmt lögum og stjórn­valds­fyr­ir­mælum og kveða jafn­framt á um að fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd skuli taka íþyngj­andi ákvarð­anir, svo sem um álagn­ingu stjórn­valds­sekta. Hvað undir það fellur verður að hluta til skil­greint í lögum en að hluta til útfært í starfs­reglum nefnd­ar­innar,“ segir í skjali for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, þar sem áformin um laga­breyt­ing­arnar eru útli­stuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár