Rússar gera loftárásir á Sýrland úr Kaspíahafi og samhæfa árásir með sýrlenska hernum

Rússar skutu í dag eldflaugum á skotmörk í Sýrlandi af herskipum sem eru staðsett í Kaspíahafi. Þetta er í fyrsta sinn sem það er gert, en samhliða loft­árásunum hófu herdeildir sýrlenska stjórnar­hersins mikla sókn í mið-Sýrlandi með hjálp loftárása rússneskra herþota.

Þetta virðist vera í fyrsta sinn sem samhæfð árás er gerð af rússnesku og sýrlensku hervaldi, eftir að rússneski herinn hóf loft­árásir í Sýrlandi 30. september. Þetta er líka í fyrsta sinn sem eldflaugum er skotið af herskipum, en ljóst er að eldflaugarnar hafa þurft að fljúga langa vegalengd, yfir Íran og Írak, til að ná til Sýrlands.

Sergei Shoigu, varnarmála­ráðherra Rússlands, segir að fjögur herskip hafi skotið 26 eldflaugum á skotmörk sem tengist Íslamska ríkinu. Ráðuneytið birti myndband af loft­árásunum á vefsíðu sinni og á youtube, eins og sjá má hér að neðan.

https://youtu.be/iMasnaAf_H4

Rússnesk stjórn­völd segjast hafa hitt öll skotmörk sín, sem hafi verið í Raqqah, Idlib og Aleppo, og þau segja að engir óbreyttir borgarar hafi fallið í árásunum. Óbreyttir borgarar og uppreisnar­menn sem ekki tengjast Íslamska ríkinu hafa þó orðið fyrir einhverjum loft­árásanna hingað til.

Sýrlenska mann­réttinda­vaktin segir að nú eigi sér stað áköfustu bardagar í marga mánuði í Hama og Idlib í kjölfar loftárása Rússa á svæðunum. Að minnsta kosti 37 árásir hafi verið gerðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár