Klám­mynda­leikari fenginn til að ræða við fram­halds­skóla­nema um kyn­heil­brigði

Stefan Octavian Gheorghe klámmynda­leikari ræddi við nemendur Mennta­skólans á Ísafirði um samkyn­hneigð og lífshlaup sitt.

Ræddi við menntaskólanema
Ræddi við mennta­skóla­nema Stefan Octavian Gheorghe, eini íslenski klám­mynda­leik­ar­inn svo vitað sé, kom í kennslu­stund í kyn­heil­brigði í Mennta­skól­anum á Ísafirði. Þar ræddi hann við nem­endur um það þegar hann kom út úr skápnum sem hommi. Mynd: Instagram

Stefan Octavian Gheorg­he klámmynda­leikari var fenginn í tíma í Mennta­skólanum á Ísafirði til að ræða við nemendur um lífshlaup sitt. Stefan, sem bjó áður á Ísafirði, lýsti því þegar hann kom út úr skápnum, hversu erfitt það hefði verið að vera inn í skápnum og hvernig það var að vera ættleiddur hingað til lands. Hann sagði nemendum, sem voru á aldrinum 17 til 20 ára, einnig frá því að hann ynni við klámmynda­framleiðslu en að sögn kennara áfangans, sem nefnist kynheilbrigði, var atvinna hans ekki rædd frekar.

Stefan hefur undan­farin misseri lýst því í fjöl­miðlum hvernig hann hóf störf innan klám­iðnaðarins. Þá er hann vinsæll snappari með fjölda fylgjenda og snappar meðal annars af setti þegar hann er við upptökur á klámefni, þó ekki af upptökunum sjálfum. Stefan lýsti því jafnframt yfir fyrir skemmstu að hann vildi fara í grunn­skóla og fræða börn um klám þar.

Lýsti lífshlaupi sínu

Kolbrún Fjóla Arnar­dóttir, kennari við Mennta­skólann á Ísafirði, fékk Stefan til að koma í tíma sem hún kennir í áfanga sem heitir kynheilbrigði. „Hann er Ísfirðingur og hann kom hingað til að segja krökkunum frá sínu lífs­hlaupi, þegar hann var að flytja frá öllum vinum sínum á Ísafirði, hversu erfitt var að vera ættleiddur og svo framvegis. Áður en kennslu­stundin hófst ræddum við saman og ég sagði við hann að það væri ekki í boði að glimmer­húða klámmynda­iðnaðinn eða neitt slíkt, og helst ekki að tala neitt um það. Óhjá­kvæmilega myndu krakkarnir samt spyrja út í það en hann ætti þá ekki að súkkulaði­húða það neitt. Hann var ekki mikið að ræða þetta í tímanum, hann var að ræða ættleiðingu sína og sitt líf á Ísafirði. Hann lýsti því þegar hann kom út úr skápnum sem samkyn­hneigður, hvað hann var gamall þá, hversu erfitt það var fyrir foreldra hans og fjöl­skyldu. Það var það sem ég vildi að hann myndi mest tala um við krakkana. Það eru alltaf einhverjir krakkar sem eru að glíma við þetta. Hann var að tala mikið um sína andlegu líðan, að hann hefði átt erfitt í skóla vegna þess að honum leið illa, hann var ekki hann sjálfur og alltaf í einhverju leikriti.“

Ekki tilgangurinn að ræða kynlíf eða klám

Kolbrún Fjóla segir að Stefan hafi sagt nemendum frá því að hann ynni sem klámmynda­leikari en það hafi ekki verið rætt frekar. „Það var í boði að krakkarnir myndu spyrja hann út í það sem kom fram í tímanum en það kom bara ein spurning í lok tímans og hún var ekki tengd þessu, klámmynda­fram­leiðslunni.“ Ekki var rætt um klám­iðnaðinn í tímanum að öðru leyti en því að Stefan sagði frá því að hann starfaði sem klámmynda­leikari. Engin gagnrýnin umræða fór því fram um klám og skugga­hliðar þess.

Spurð hvor henni þyki ekkert vafasamt að fá klámmynda­leikar til að tala við framhalds­skólanema í tíma um kynheilbrigði segir Kolbrún Fjóla að það hafi aldrei verið tilgangurinn að fá Stefan til að ræða kynlíf í tímanum. Hefðu vafasamar spurningar komið upp hefði það verið hennar hlutverk að stöðva slíkt. „Stefan fékk ekki tækifæra til að lýsa sinni vinnu neitt. En óhjá­kvæmilega sagði hann frá því sem hann ynni við. Hann er náttúru­lega frá Ísafirði, samkyn­hneigður og þekktur snappari og krökkunum þykir það eðlilega spennandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár