Fyrirtæki Huang Nubo til rannsóknar vegna svikamála

Banka­eftirlitið í Huangshan-héraði í Kína hefur hafið opinbera rannsókn á Zhongkun Group samstæðunni, sem er í eigu Huang Nubo, fyrir meinta misnotkun á lánum til fyrir­tækisins. Zhongkun Group, hefur verið sett á sérstakan svika-gátlista hjá kínverska banka­eftirlitinu, en málið snýst um misnotaðar lánveitingar upp á tæpa tólf milljarða króna. Dagblaðið China Business Journal greinir frá málinu.

Eins og kunnugt er hafði kínverski auðkýfingurinn áhuga á að kaupa Gríms­staði á Fjöllum og ráðast þar í tugmilljarða króna uppbyggingu á ferða­þjónustu. Íslensk stjórn­völd meinuðu Huang að kaupa jörðina, en þá stofnuðu sex sveitar­félög á Norður- og Austur­landi einka­hlutafélag með það að markmiði að eignast jörðina að hluta og leigja til Huang í 40 ár. Af þessu hefur enn ekki orðið, en kínverski fjár­festirinn hefur í milli­tíðinni rennt hýru auga til uppbyggingar ferða­þjónustu á Svalbarða.

Stjórnarmenn og forstjóri Zhongkun Group yfirheyrðir


Kín­verska dag­blaðið greinir frá því að áform Huang Nubo um að kaupa land á Íslandi hafi vakið mikla athygli þar í landi. Yfirmenn Zhongkun Group hafa verið yfir­heyrðir af kín­verska fjár­mála­eft­ir­lit­inu, en þeirra á meðal er for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Jiao Qing.

Samkvæmt gögnum banka­eftirlitsins, frá tíma­bilinu maí til júlí í fyrra, misnotaði félagið Jingyi Tourism Development, sem er dóttur­fyrirtæki Zhongkun Group, lán upp á tæpa fjórtán milljarða króna frá ICBC bankanum, með því að nota fjár­magnið til annarra verkefna en lágu til grund­vallar láninu. ICBC er iðnaðar- og verslunar­banki Kína.

Samhliða þessu hefur Zhongkun Group verið sett á sérstakan svika-gátlista hjá kínverskum yfir­völdum, en fyrir­tækið og dóttur­félög þess eru bendluð við sextán svikamál sem hljóða upp á hátt í tólf milljarða króna.

Áður en kínverska fjármála­eftirlitið hóf rannsókn á fyrir­tækjum Huang Nubo, voru framkvæmdir Zhongkun Group á vatns­verndar­svæði Anhui-héraðs stöðvaðar af umhverfis­verndar­yfirvöldum, en ráðist var í framkvæmdirnar á svæðinu án nokkurra tilskilina leyfa.

Rannsókn kínverska bankaeftirlitsins


Jingyi Tourism Develop­ment, sem er ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki, hefur einka­rétt á upp­bygg­ingu og starf­semi ferða­þjón­ustu í þremur alda­gömlum þorpum: í Hongcun, sem er á heimsminja­skrá, Nanping, sem hefur verið notað til sjón­varps- og kvik­mynda­gerðar, og Guanlu, sem er sagður vera dul­ar­fullur íveru­staður kynja­vera sam­kvæmt kín­verskum forn­sögum. Auk þessa rekur fyr­ir­tækið Zhongcheng Villa, sem er þriggja stjörnu hótel.

Árið 2003 hóf fyrir­tækið að fjárfesta í framkvæmdum á uppbyggingu háklassa ferðamanna­staðar í Hongcun. Samkvæmt heimildum China Business Journal, fékk fyrir­tækið hátt í tólf milljarða króna lán frá ICBC til framkvæmd­anna árið 2012, en notaði stóran hluta láns­fjár­hæðarinnar til að niður­greiða önnur lán og kom háum fjárhæðum undan í formi falsaðra samninga við verktaka. Misnotkunin á lánveitingunum voru síðar staðfest af fjármála­eftirlitinu í Huangshan.

Lána­misnotkun Jingyi varð til þess að fjármála­eftirlitið í Huangshan beindi þeim tilmælum til ICBC bankans að herða útlána­reglur sínar og krefjast endur­greiðslu frá Jingyi á fjárhæðum sem ekki fóru í tilgreind verkefni sem lágu til grund­vallar lánveitingunum. Samhliða, þann 8. apríl síðastliðinn, yfir­heyrði fjármála­eftirlitið fimm einstaklinga frá Zhongkun samstæðunni vegna málsins, þeirra á meðal forstjóra samstæðunnar. Auk þessa var fyrir­tækið aðvarað fyrir ólöglega notkun á lánsfé frá ICBC.

Mynd tekin í Hongcun.

Vafasamar fjárfestingar og draugaverkefni


Í grein China Business Journal er látið að því liggja að fjár­fest­inga­á­ætl­unum Zhongkun Group sé veru­lega ábóta­vant, og ekki auð­séð hvernig verk­efnin sam­stæð­unnar eigi að skila hagn­aði. Heild­ar­lán Jingyi 2013 námu til að mynda alls 700 millj­ónum Yuan (eða sem sam­svarar tæpum fjórtán millj­örðum króna) og því hefði fyr­ir­tækið ekki náð nauð­syn­legu hlut­falli milli veð­settra eigna á móti árs­tekjum. Grunur leikur á að heild­ar­eignir, tekjur og hagn­aður hafi verið ýktar til að svíkja lán út úr bönk­unum.

Geese.are.Swiming.in.the.Pond.in.Hongcun.Village
Geese.are.Swiming.in.the.Pond.in.Hongcun.Village

Í áður­nefndri grein er sagt frá heimsókn blaða­manns á risa­vaxinn ferðamanna­stað Jingyi við Quishu stöðu­vatnið, þar sem búið var að byggja tugi bygginga, þar sem engan ferðamann var að sjá og allir vegir á svæðinu voru auðir. Í dag vinnur Zhongkun Group samstæðan að stórtækum framkvæmdum og uppbyggingu ferðamanna­staða í Anhui, Peking, Yunnan og Xinjiang. Miklar og ónýttar byggingar eru á meðal verst varð­veittu leyndar­mála Kínverja.

Eins og áður segir er Zhongkun Group samstæðan sökuð um aðild að sextán fjársvika­málum fyrir allt að tólf milljarða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár