Reykjavík er í 29. sæti yfir dýrustu borgir heims

Reykjavík hefur fallið hratt á listanum yfir dýrustu borgir heims eftir hrunið.
Reykja­vík hefur fallið hratt á list­anum yfir dýr­ustu borgir heims eftir hrunið. Mynd: Nika Kramer

Reykjavík er í 29. sæti yfir dýrustu borgir heims samkvæmt nýrri samantekt The Economist sem birt var á fimmtudag. Tímaritið tekur reglulega saman hvað það kostar að búa í öllum elstu borgum heims og hefur gert það árum saman. Því ofar sem borg er á listanum því betur gengur íbúum hennar efnahags­lega og því eftirsóknar­verðara þykir að búa í þeim. Fyrir tíu árum síðan, árið 2006, var Reykjavík í þriðja sæti yfir dýrustu borgir heims. Fall íslensku höfuð­borgarinnar á eftir­hrunsárum er því umtals­vert. Staða hennar á meðal borga heims hefur þó braggast á undan­förnum árum. Árið 2013 var Reykjavík í 47. sæti á lista The Economist. Nýi listinn sýnir stöðuna eins og hún var í september 2015.

Listinn um kostnað sem fylgir búsetu í borgum heimsins er tekinn saman tvisvar á ári. Hann nær til 131 borgar og við gerð hans eru borin saman um 400 verð á um 160 mismun­andi þjónustum og vörum sem hægt er að kaupa í borgunum. Þeirra á meðal eru matur, drykkir, föt, nauðsynja­vörur heimilisins, húsnæðis­kostnaður, kostnaður vegna orku-, vatns- og netkaupa, menntunar­kostnaður og kostnaður við tómstundir og skemmtun. Mæli­kvarðinn sem notaður er til að staðsetja borgirnar í sæti á listanum er hlutfalls­legur kostnaður þess að búa í þeim samaborið við New York. Það kostar Reyk­víkinga t.d. 83 prósent af því sem það kostar að búa í New York að draga fram lífið.

Singapúr er dýrasta borg í heimi samkvæmt nýjasta listanum og heldur því sæti frá því að hann var birtur síðast. Hún hefur þó dalað í verði á milli ára og er nú tíu prósent ódýrari í saman­burði við New York en árið áður.Styrking á gengi Bandaríkja­dals gerði það að verkum að allar 16 borgir landsins sem skoðaðar eru við gerð listans fóru upp um að minnsta kosti 15 sæti á milli ára. New York er nú í fyrsta sinn í 14 ár á meðal tíu dýrustu borga heims. Fimm Evrópu­borgir eru á meðal tíu dýrustu borganna. Þær eru Zürich, Genf, París, London og Kaupmanna­höfn.

Ódýrasta borgin á listanum er Lusaka, höfuðborg Sambíu. Að búa þar kostar einungis 41 prósent af því sem það kostar að búa í New York. Lækkandi verð á hrávöru, og sérstak­lega olíu, hefur gert nokkrar borgir sem hafa verið á mikilli efnahagslegri siglingu á undan­förnum árum mun ódýrari en þær voru. Þar ber helst að nefna Ríó, höfuðborg Brasilíu, sem fellur um heil 52 sæti á listanum milli birtinga, og stærstu borgir Rússlands, Moskvu og St. Péturs­borg, sem falla um 63 og 51 sæti. Í Rússlandi lækkaði kostnaður við búsetu í þessum borgum um 40 prósent á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár