Íbúðaverð hækkar og hækkar - Fasteignamat íbúða hækkaði um 303 milljarða

Íbúðaverð hefur á undan­förnum tólf mánuðum hækkað um 8,9 prósent, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Vísi­tala íbúða­verðs á höfuðborg­ar­svæðinu hækkaði um 1,4 prósent í des­em­ber á síðasta ári miðað við fyrri mánuð og stóð í 448,5 stig­um. Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði vísi­tal­an um 2,3 prósent og síðastliðið hálft ár hækkaði hún um 4,7 prósent.

Sé horft sérstak­lega til Fasteigna­mats íbúða í landinu, sem fundið er út með upplýsingum úr þing­lýstum kaup­samningum, þá hækkaði fasteignamat íbúðar­húsnæðis um 7,5 prósent milli fasteigna­matsins fyrir árið 2015 og síðan 2016. Fasteignamat íbúða í landinu nam 3.540 milljörðum í matinu fyrir árið 2015, en fyrir árið 2016 var það 3.843 milljarðar, samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár.

Flestar spár fyrir næstu ár gera ráð fyrir áfram­haldandi hækkun fasteigna­verðs, og má nefna að greining Arion banka gerir ráð fyrir sjö til átta prósent hækkun á ári út næsta ár.

Það skiptir miklu máli vaxandi eftir­spurn eftir litlum og meðal­stórum íbúðum á höfuð­borgar­svæðinu.

Fjöldi þing­lýstra kaup­samninga á höfuð­borgar­svæðinu frá 15. janúar til og með 21. janúar 2016 var 154, samkvæmt tölum sem Þjóðskrá birti í dag. Þar af voru 113 samningar um eignir í fjölbýli, 31 samningur um sérbýli og 10 samningar um annars konar eignir en íbúðar­húsnæði. Heildar­veltan var 7.038 milljónir króna og meðal­upphæð á samning 45,7 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár