Vill koma umræðu um orkuframleiðslu og náttúruvernd úr skotgröfunum

Framkvæmda­stýra Orku nátt­úrunnar segir leiðina að loftslags­markmiði ríkis­stjórnarinnar ekki hafa verið nægilega varðaða. Samkvæmt henni þarf opin umræða um virkjanir og orku­sparnað að eiga sér stað til að bæta úr því.

Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar.
Berglind Rán Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stýra Orku nátt­úr­unnar. Mynd: Atli Már Hafsteinsson

Ræða þarf opinskátt um það hvernig Ísland hyggst ná eigin loftslags­markmiðum og hvort þær leiðir feli í sér auknar virkjanir eða meiri orku­sparnað, segir Berglind Rán Ólafs­dóttir, framkvæmda­stjóri Orku nátt­úrunnar, í grein sinni í jólablaði Vísbendingar, sem kom út á föstu­daginn.

Samkvæmt Berglindi hefur umræðan um orku­framleiðslu og náttúru­vernd setið föst í djúpum skot­gröfum um langt skeið, þar sem andstæðir hópar virkjunar­sinna og verndunar­sinna hafa skipst á skeyta­sendingum. Illa hafi tekist að smíða brú á milli þeirra sem telja að verðmætri náttúru hafi verið fórnað í þágu fárra stór­fyrirtækja og hinna sem telja að mikil efnahagsleg framfara­skref hafi verið stigin með virkjana­framkvæmdum og orku­sölu­samningum.

Hún segir þennan málaflokk þó ekki vera svart­hvítan, heldur marghliða úrlausnar­efni þar sem taka verði ákvarðanir á grunni vandaðra kostnaðar- og ábata­greininga þar sem öll sjónarmið verði tekin með í reikninginn.

Mikilvægt að taka ekki ákvarðanir í flýti

Í grein sinni víkur Berglind að nýlegum vanda við að nýta innlenda orkuþörf, sem hún segir að geti hvatt til ályktana um að drífa þurfi í virkjana­framkvæmdum. Að hennar mati ætti hins vegar ekki að taka ákvarðanir um virkjanir í flýti á grunni þannig stundar­vanda.

Hins vegar þyrfti að taka ákvarðanir um það hvort virkja þurfi meira til þess að Ísland nái markmiðum sínum í loftslags­málum. Í því tilliti bendir Berglind á að mögulega væri hægt að komast hjá fleiri virkjunum ef víðtæk sátt myndaðist um að efna til markviss orku­sparnaðar, en bætir þó við að líklegt sé að virkja þurfi meira ef við ætlum að framleiða elds­neytið sjálf fyrir samgöngur á sjó og í lofti hérlendis.

Sömuleiðis segir hún að það sé sjálfsagt að skoða hvort selja ætti umhverfis­væna orku til annarra landa í gegnum sæstreng eða framleitt umhverfis­vænt eldsneyti til útflutnings í stórum stíl. Hér bætir hún þó við að mikilvægt sé að hafa í huga að slíkir valkostir séu alls ekki eina leiðin fyrir Íslendinga til að verða öðrum þjóðum að liði í loftslags­baráttunni.

Sem dæmi um aðrar leiðir nefnir Berglind að Íslendingar geti haft áhrif í gegnum aukna áherslu á nýsköpun, en með því væri hægt að þróa grænar lausnir sem geta nýst öðrum þjóðum. Einnig segir hún Ísland geta orðið til fyrir­myndar í innleiðingu hringrásar­hagkerfisins, þar sem verðmæti eru sköpuð með minni sóun og meiri endur­nýtingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár