Almenningi haldið fjarri þjóðhátíðardagskrá og foreldrum kórbarna vísað burt

Forsætis­ráðherra segist kunna illa við girðingar og bendir á þjóðhátíðar­nefnd og lögreglu. Þjóðhátíðar­nefnd kom hvergi nálægt ákvörðunum um öryggis­ráðstafanir og lögregla segir afgirta svæðið hafa verið stækkað að beiðni forsætis­ráðuneytisins og Alþingis.

Aðgangur almennings var takmaður verulega og nær allur Austur­völlur afgirtur á meðan þjóðhátíðar­dagskrá fór fram við styttuna af Jóni Sigurðs­syni í dag. 

Gripið var til þessara ráðstafana vegna mótmælanna sem haldin voru á þjóð­hátíðar­daginn í fyrra þegar þáverandi forsætis­ráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þurfti að flytja hátíðar­ræðu sína undir bumbu­slætti, hrópum og köllum. 

Haft er eftir Sigurði Inga Jóhanns­syni forsætis­ráðherra á Mbl.is að forsætis­ráðuneytið hafi ekki komið að þeirri ákvörðun að stækka hið afgirta svæði, heldur einungis þjóðhátíðar­nefnd Reykja­víkurborgar og lögreglan. 

Þórgnýr Thoroddsen, formaður þjóðhátíðar­nefndar, bendir hins vegar á að nefndin komi ekki að ákvörðunum um öryggis­ráðstafanir og innan hennar hafi engin umræða farið fram um öryggis­gæsluna. 

„Þessi umræða fór hvorki fram innan þjóðhátíðar­nefndar né er þessi ákvörðun á hendi hennar. Nefndin sér einvörðungu um skipulagningu athafnarinnar fyrir hönd forsætis­ráðuneytisins og öryggis­ráðstafanir eru teknar af lögreglu,“ skrifar Þórgnýr á Facebook.

Að sama skapi segir Sóley Tómasdóttir, forseti borgar­stjórnar, að borgin hafi ekki óskað eftir girðingunum. „Þvert á móti eru þessar meintu öryggis­ráðstafanir okkur þvert um geð,“ skrifar hún. 

Þá er haft eftir Ágústi Svanssyni, aðal­varðstjóra lögreglu sem hafði yfir­umsjón með öryggis­gæslunni á Austur­velli, í viðtali á Vísi.is að lögreglan hafi ekki komið nálægt þeirri ákvörðun að stækka hið afgirta svæði „öðruvísi en að tryggja öryggi að beiðni forsætis­ráðuneytisins og Alþingis“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þjóðhátíð

InnlentÞjóðhátíð

Þjóðhátíðar­nefnd ákveðin að halda hátíðina síðar í sumar

Þjóðhátíð í vestmanna­eyjum verður haldin í sumar þrátt fyrir hertar sótt­varnar­aðgerðir. Þjóðhátíðar­nefnd ætlar að bíða í nokkrar vikur og stefnir á að halda hátíðina síðar í sumar. Nú er orðið ljóst að Þjóð­hátíðin fer ekki fram um næstu helgi, Verslunar­manna­helgina eins og allajafna. Hertar sótt­varnar­aðgerðir koma í veg fyrir að svona fjölmenn hátíð geti farið fram. Þjóðhátíðar­nefnd sendi frá sér...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár