Rödd starfsfólks í Bandaríkjunum sterkari eftir faraldurinn

Útlit er fyrir að staða launþega á vinnu­markaði vestanhafs sé öruggari nú en fyrir faraldurinn, samkvæmt vinnu­markaðs­hagfræðingi og dósent við viðskipta­deild HR.

Katrín Ólafsdóttir, dósent við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík
Katrín Ólafs­dóttir, dós­ent við Við­skipta­deild Háskól­ans í Reykja­vík Mynd: Aðsend

Heims­faraldurinn hefur orðið til þess að margir starfs­menn í Banda­ríkjunum hafi áttað sig á lélegri stöðu sinni á vinnu­markaði og sagt upp starfi sínu, en fjöldi uppsagna þykir merki um að starfs­fólk sé nú öruggara um stöðu sína á vinnu­markaði. Þetta skrifar Katrín Ólafs­dóttir, vinnu­markaðs­hagfræðingur og dósent við viðskipta­deild Háskólans í Reykjavík, í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Faraldurinn vakti fólk til umhugsunar

Samkvæmt Katrínu leiðir starfs­fólk almennt ekki endilega hugann að eigin kjörum nema að einhver ytri atburður verði til að hreyfa við því. Vísbendingar eru uppi um að kórónu­veiru­faraldurinn hafi einmitt verið slíkur atburður og hafi leitt til þess að starfs­fólk hafi skoðað atvinnu­möguleika sína, sem það hefði annars ekki gert.

Óvenju­mikið hefur verið um uppsagnir síðustu mánuði í Banda­ríkjunum, meira en fyrir faraldurinn. Sér í lagi hafi uppsagnirnar aukist í atvinnu­greinum þar sem veitt er persónuleg þjónusta, eins og á veitinga­stöðum, hótelum og í verslun. Auk þess segir Katrín að einnig hafi gætt uppsagna á öðrum vinnu­stöðum þar sem fólk vinnur í nánu samneyti og hópsmit gætu auðveldlega átt sér stað.

Endurskoðun á lélegum aðstæðum

Katrín segir kjör starfs­fólks í Banda­ríkjunum almennt vera verri en í Evrópu, þar sem lítill réttur er til orlofs, bæði vegna fæðinga og veikinda. Þá séu sjúkra­tryggingar að jafnaði tengdar vinnustað og hefur fólk í hluta­störfum, auk atvinnu­lausra, því yfirleitt enga sjúkra­tryggingu.

„Faraldurinn hefur því orðið til þess að margir hafa áttað sig á lélegri stöðu sinni á vinnu­markaði og í kjölfarið endur­skoðað hana,“ segir Katrín í greininni sinni. „Margir þeirra sem sendir voru heim til að vinna njóta samvist­anna með fjöl­skyldunni og vilja vinna þar áfram eða vinna styttri vinnudag.“

Rödd starfsfólksins styrkist

Samhliða þessum uppsögnum segir Katrín að staða launþega á vinnu­markaði vestanhafs hafi styrkst, en verkföll þar á síðustu árum hafa ekki verið tíðari í Banda­ríkjunum í þrjá áratugi. Þar nefnir hún nýleg dæmi um verkfalls­boðanir hjá starfs­fólki morgunkorna­fram­leiðandans Kellogg, vinnuvéla­fram­leiðandans John Deeree, starfs­fólki í leikhúsum og heilbrigðis­starfsfólki hjá Kaiser Permanente.

Samkvæmt Katrínu hefur hlutur stéttar­félaga venjulega minnkað og hlutur íhlaupa­starfa aukist í kjölfar efnahags­áfalla. „Í þetta sinn er útlit fyrir að vinnu­markaður breytist enn að nýju, en í þetta sinn virðist rödd starfs­fólks vera að styrkjast og mögulegt er að þróunin verði í þá átt að réttindi og laun starfs­fólks muni batna,“ bætir hún við.

Hægt er að lesa grein Katrínar í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár