Kínverjar í samkeppni við Airbus og Boeing: Fyrsta flugvélin frumsýnd

Kínverskir embættis­menn fögnuðu frum­sýningu farþega­flugvélar af gerðinni C919.

Um fjögur þúsund kínverskir embættis­menn og aðrir gestir fögnuðu frum­sýningu fyrstu farþega­flug­vélarinnar af gerðinni C919 í Shanghai í gær. Flugvélin er sú fyrsta sem kínverska ríkis­fyrirtækið Comac fram­leiðir. Afhjúpun flug­vélarinnar markar tímamót þar sem Kína blandar sér í samkeppni á markaði flugvéla­framleiðslu, þar sem fyrir eru risarnir Airbus og Boeing.

Í frétt Business Insider um frum­sýningu flug­vélarinnar segir að Kína vilji með eigin fram­leiðslu ná til sín hluta af þeim fjárhags­lega ávinningi sem nú rennur til annarra flugvéla­fram­leiðenda. Nokkuð er liðið frá því að vinna hófst við smíði vélarinnar, sem var árið 2008. Þá var áætlað að áætlunar­flug myndi hefjast árið 2016 en það tafðist um eitt ár.

Í C919 flug­vélunum eru sæti fyrir 168 farþega og keppir vélin því helst við A320 flugvél Airbus og 737 flugvél Boeing. Comac, fram­leiðandi vélanna, segir að alls hafi 21 viðskipta­vinur pantað 517 eintök af C919 til þessa, einkum kínversk flugfélög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár