Jónas Jóhannsson skipaður héraðsdómari

Dóms­mála­ráð­herra, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, hefur skipað Jónas Jóhanns­son, lög­mann og fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ara, í emb­ætti hér­aðs­dóm­ara

Jónas Jóhanns­son, lög­maður og fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ari, hefur verið skip­aður í emb­ætti hér­aðs­dóm­ara frá og með 13. nóv­em­ber næst­kom­andi. Jónas mun hafa starfs­stöð við Hér­aðs­dóm Reykja­ness en sinna verk­efnum fyrir alla dóm­stóla. Frá þessu er greint á vefStjórn­ar­ráðs­ins.

Dóm­nefnd sem skil­aði umsögn um hæfni dóm­ara­efna mat Jónas hæf­astan af fjórtán umsækj­endum til að hljóta emb­ætt­ið. ­Dóm­­nefnd­ina skip­uðu Ing­i­­mundur Ein­­ar­s­­son for­­mað­­ur, Kristín Bene­dikts­dótt­ir, Óskar Sig­­urðs­­son, Ragn­heiður Harð­­ar­dóttir og Sig­ríður Þor­­geir­s­dótt­­ir. Jónas var með mesta reynslu af hér­aðs­dóm­ara­störfum af umsækj­end­um, rúm sextán ár, en rúmur ára­tugur er síðan hann fékkst við dóms­störf.

Jónas sótti einnig um stöðu lands­rétt­ar­dóm­ara sem aug­lýst var í maí síð­ast­liðnum eftir að Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son sagði starfi sínu lausu í maí. Eiríkur Jóns­son, pró­fessor við Háskóla Íslands, var síðan skip­aður dóm­ari við Lands­rétt í ágúst síð­ast­liðnum en dóm­nefnd sem fjallar um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti mat Eirík hæf­astan til að gegna emb­ætt­in­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár