Eiríkur Jónsson skipaður nýr landsréttardómari

Pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands verður skip­aður dóm­ari við Lands­rétt frá og með 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Eiríkur Jónsson
Eiríkur Jónsson Mynd: Skjáskot

Forseti Íslands hefur fall­ist á til­lögu Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur dóms­mála­ráð­herra um að Eiríkur Jónsson, pró­fessor við Háskóla Íslands, verði skip­aður dóm­ari við Lands­rétt frá og með 1. sept­em­ber næst­kom­andi en dóm­nefnd sem fjallar um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti mat Eirík hæf­astan til að gegna emb­ætt­inu.

Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Aðrir umsækj­endur um emb­ættið voru Ásmundur Helgason, Ástráður Har­alds­son, Guð­mundur Sig­urðs­son, Jón Hösk­ulds­son og Jónas Jóhanns­son.

Sérstök hæf­is­nefnd mat Eirík hæf­astan þeirra sem sóttu um laust emb­ætti lands­rétt­ar­dóm­ara, eins og áður segir. Eiríkur var á meðal þeirra sem sóttu um stöðu lands­rétt­ar­dóm­ara þegar 15 slíkar voru aug­lýstar til umsóknar í aðdrag­anda þess að milli­dóm­stigið tók til starfa. Hæf­is­nefnd mat Eirík þá sjö­unda hæf­astan af þeim sem sóttu um. Sig­ríður Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað hins vegar að taka út fjóra þeirra sem hæf­is­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­ustu og setja aðra, sem nefndin hafði metið minna hæfa, inn á lista yfir þá sem hún vildi skipa. Alþingi sam­þykkti svo lista Sig­ríð­ar.

Í kjöl­farið hafa íslenskir dóm­stólar úrskurðað að Sig­ríður hafi brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu að þeirri nið­ur­stöðu í mál­inu í mars að dóm­ar­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­með­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­mála­ráð­herra.

Staða opn­að­ist

Einn þeirra ell­efu sem voru lög­lega skip­aðir í Lands­rétt, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, sagði starfi sínu lausu í vor og greindi frá því að hann hygð­ist setj­ast í helgan stein. Því verður laus staða við rétt­inn frá og með kom­andi haust­i.

Hún var aug­lýst og umsókn­ar­frestur rann út síðla í maí. Alls sóttu átta um stöð­una, þar af tveir sitj­andi dóm­arar í Lands­rétti, Ásmundur Helga­­son og Ragn­heiður Braga­dótt­­ir. Þau eru bæði á meðal þeirra fjög­­urra lands­rétt­­ar­­dóm­­ara sem hafa ekki fengið að dæma í málum frá því að nið­­ur­­staða Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu í Lands­rétt­­ar­­mál­inu var birt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár