Vindorka felld undir rammaáætlun

Frumvarp Jóhanns Páls Jóhanns­sonar umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra um heildræn lög um vindorku var samþykkt á síðasta degi þingsins. Markmiðið segir hann vera „að standa vörð um náttúru Íslands og tryggja að vind­orkunýting fari einvörðungu fram á örfáum afmörkuðum svæðum í sátt við nærsam­fé­lagið“.

Heildræn lög um vindorku
Heildræn lög um vind­orku Jóhann Páll Jóhanns­son ráð­herra fékk frum­varp sitt sam­þykkt á föstu­dag. Mynd: Golli

Heildræn lög um vindorku voru í fyrsta skipti sett þegar frumvarp Jóhanns Páls Jóhanns­sonar umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra var samþykkt á síðasta degi 157. löggjafar­þingsins fyrir helgi.

„Markmið ríkis­stjórnarinnar er skýrt: að standa vörð um náttúru Íslands og tryggja að vind­orkunýting fari einvörðungu fram á örfáum afmörkuðum svæðum í sátt við nærsamfélagið, þar sem hún er til þess fallin að styðja við atvinnu- og byggða­þróun og hagkvæma uppbyggingu raforku­flutnings­kerfisins,“ sagði Jóhann Páll um málið.

43 svæði um allt land hafa verið lögð til sem möguleg svæði fyrir vind­orkuver á síðastliðnum árum en vindorkan hefur verið verulega umdeild. Í Silfrinu undir lok apríl tókust umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra og Halla Hrund Loga­dóttir, þingmaður Framsóknar­flokksins, um vind­orkumálin en Halla Hrund taldi vind­orkuna vera tifandi tíma­sprengju. Ráðherra sagði að það væri „ævintýra­legur hræðslu­áróður“ að allar 43 tillögurnar að vind­orkuverum yrðu að veruleika. 

Tifandi tíma­sprengjaHalla Hrund Loga­dóttir …
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár