Árásarmaðurinn í Kaupmannahöfn 22 ára Dani

Maðurinn sem grunaður var um hryðjuverka­árásir í Kaupmanna­höfn í gær hét Omar Abdel Hamid El-Hussein, samkvæmt TV 2 í Danmörku. Nafnið hefur ekki verið staðfest af lögreglunni.

Lögreglan hefur hins vegar greint frá því að árásar­maðurinn hafi verið þekktur glæpa­maður, sem hafi margoft komist í kast við lögin. Hann hafi verið 22 ára og fæddur í Danmörku.

Föt og skotvopn fundust í Mjølnerparken, sem talið er að hann hafi notað í árásinni á menningar­húsið Krudttønden.

Samkvæmt dönskum fjöl­miðlum var maðurinn látinn laus úr fangelsi fyrir tveimur vikum síðan eftir að hafa afplánað dóm fyrir ofbeldis­brot. Hann komst í fréttir í Danmörku eftir að lýst eftir honum vegna hnífs­stungu í lest fyrir einu og hálfu ári síðan.

Omar var skotinn til bana af lögreglu í nótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár