Norður-Kórea missti sambandið - netárás frá Bandaríkjunum?

Norður-kórea missti sambandið við internetið í gærkvöldi. Margir fjöl­miðlar í Banda­ríkjunum, þar á meðal New York Times og Quartz, veltu því upp í kjölfarið hvort Banda­ríkin beri ábyrgð á því að landið missti samband við netið, en netárás sem gerð var á Sony á dögunum hefur verið rakin til yfirvalda í Norður-Kóreu. Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, hefur sagt netárásir sem þessar vera ógn við þjóðar­öryggi Banda­ríkjanna, þær verði rann­sakaðar og þeim síðan svarað.

Ekki er víst að margir hafi tekið eftir því að internet­sambandið hafi rofnað í Norður-Kóreu, þar sem aðgengi fólks að því er verulega takmarkað og er notkun á því undir strangri ritstýringu yfirvalda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár