Endanlega staðfest að ríkið mátti ekki skerða sérstaka framfærsluuppbót öryrkja

Hæstiréttur staðfesti í dag fyrri niður­stöðu bæði Lands­réttar og héraðs­dóms um að ríkinu hefði verið óheimilt að skerða sérstaka framfærslu­uppbót öryrkja vegna búsetu þeirra annarsstaðar en á Íslandi áður en örorkumat fór fram.

Formaðurinn
For­mað­ur­inn Þuríður Harpa, for­maður ÖBÍ, seg­ist ánægð með nið­ur­stöð­una en hún furðar sig á ákvörðun ráð­herra að fara með málið til Hæsta­réttar eftir skýra nið­ur­stöðu á tveimur dóm­stigum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Búsetu­skerðingar örorku­lífeyris er ólögmætar. Það hefur nú verið staðfest af Hæstarétti en áður höfðu bæði héraðs­dómur og Lands­réttur komist að sömu niður­stöðu. Ríkið hafði freistað þess að fá niður­stöðunni snúið fyrir Hæstarétti en hafði ekki erindi sem erfiði. Málið snýst um greiðslur sem tekju­lægsti hópur örorku­lífeyrisþega nýtur, sérstaka framfærslu­uppbót. Til að eiga rétt á henni þarf einstaklingur að vera undir framfærslu­viðmiði laga.

„Þetta er mjög ánægjuleg og gleðileg niður­staða sem kemur til með að bæta hag þúsunda einstaklinga sem hafa allt frá því að þessi ólöglega framkvæmd tók gildi árið 2009 lifað undir fátæktar­mörkum á Íslandi. Ég fagna þessu mjög og hvet ráðherra að leiðrétta nú alveg aftur til 2009,“ segir Þuríður Harpa Sigurðar­dóttir, formaður Öryrkja­bandalags Íslands, sem bendir á að málið hafi verið höfðað árið 2016 og hefur dregist um í dóms­kerfinu í sex ár.

„Þetta er sá hópur sem lang verst stendur í …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár