Orkusalan harmar að vera til umræðu en svarar engu

Framkvæmda­stjóri Orku­sölunnar, Magnús Kristjánsson, svarar engum spurningum um hvað stjórn­endur vissu um tengsl nýráðins fjármála­stjóra við Samherja og Namibíu­málið. Til að mynda ekki því hvort stjórn­endur hafi vitað af því að namibíska lögreglan hafi grunað fjármála­stjórann um lögbrot.

Tjáir sig ekki
Tjáir sig ekki Magnús seg­ist ekki tjá sig um mál ein­stakra starfs­manna og því svari hann engum spurn­ingum um ráðn­ingu nýs fjár­mála­stjóra. Mynd: Orkusalan

„Orkusalan harmar mjög að félagið sé dregið inn í umræðuna með þessum hætti enda ekkert sem félagið hefur til saka unnið,“ segir Magnús Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Orku­sölunnar, í svari við spurningum er varða ráðningar­ferli nýs fjármála­stjóra, Elísabetar Ýrar Sveins­dóttur.

NýráðinElísabet Ýr fór frá Samherja til Orku­söl­unnar nýlega. Tilkynnt var um ráðn­ing­una í byrjun þess­arar viku.

Hún er meðal þeirra sem namibíska lögreglan bað Interpol um að hafa uppi á vegna rann­sóknar á mútu­greiðslum Samherja til namibískra áhrifa­manna.

Stundin beindi því til Magnúsar hvort stjórn­endur hefðu verið meðvitaðir um aðkomu Elísabetar Ýrar að milli­færslum frá Kýpur­félögum Samherja til leyni­félags James Hatuikulipi, stjórnar­formanns namibísku ríkis­útgerðarinnar Fishcor, í Dúbaí. James hefur setið í gæslu­varðhaldi síðan í lok árs 2019 vegna málsins. Magnús svaraði engri af þeim spurningum sem Stundin beindi til hans en sagði þess í stað að „[f]aglega var staðið að ráðningunni í samvinnu við ráðningar­stofu okkar VinnVinn“. 

„Orkusalan harmar mjög að félagið sé dregið inn í umræðuna með þessum hætti enda ekkert sem félagið hefur til saka unnið“

Upplýsingar um áhuga namibískra lögreglu­yfirvalda á Elísabetu Ýr komu fram í skjölum sem lögð fyrir fyrir dómara á síðasta ári. Í beiðninni til Interpol sagðist lögreglan gruna hana og níu aðra nafn­greinda starfs­menn Samherja um lögbrot. Hún er þó ekki meðal þeirra þriggja sem saksóknari í Namibíu hefur viljað ákæra í því máli sem nú er til meðferðar fyrir dómstólum. Það er aftur á móti Ingvar Júlíusson, en þau tvö samþykktu milli­færslurnar til Dúbaí-félagsins Tundavala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár