Ung kona vaknaði ekki á aðfangadag - safnað fyrir fjölskylduna

Fjöl­skylda Ástrósar Kristrúnar­dóttur náði ekki að vekja hana á aðfangadags­morgun. Aðstand­endur fjöl­skyldunnar og Ástrósar hafa stofnað til söfnunar henni til hjálpar.

Ung kona, Ástrós Kristrúnar­dóttir, lést á aðfangadag, í blóma lífsins. Ástrós var aðeins 22 ára gömul. Fjöl­skylda hennar náði ekki að vekja hana um  morguninn.

Safnað er fyrir fjöl­skyldu Ástrósar til þess að hjálpa henni með kostnað vegna jarðar­farar og afleiðinga áfallsins af missinum. Í samtali við Stundina segir frænka Ástrósar, Sólveig Harpa Helga­dóttir, að Ástrós hafi verið elskuð af fjöl­skyldu sinni. Fjöl­skyldan þarfnist nú stuðnings.

„Elsku Ástrós. Unga og fallega frænka okkar lést á aðfangadag. Sorgin og söknuðurinn er mikill fyrir fjöl­skyldu hennar og vini,“ segir Sólveig Harpa í Facebook-færslu. „Þetta er erfiður tími fyrir þennan hræðilega missi því langar mig, fyrir hönd stór­fjöl­skyldunnar, að setja af stað söfnun fyrir fjöl­skyldu hennar sem nú þarf að undirbúa jarðarför og erfi­drykkju fyrir stóran fjölda fólks sem vill kveðja þessa ástkæru, yndislegu og litríku stelpu sem fór alltof fljótt frá okkur.“

Vinkona Ástrósar lýsir einnig eftir stuðningi fyrir fjöl­skyldu hennar í Facebook-hópnum Góða systir.

Ástrós var fædd 24. júlí 1994.

Sjá færsl­una á Facebook

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár