Viðtal

„Ég verð skít­hræddur þegar ég mæti háhyrn­ingum og útselum“

Heiðar Logi Elíasson er 23 ára gam­all og jafn­framt fyrsti og eini atvinnu­maður okkar Íslend­inga þegar kemur að brim­brettum. Hann fann sig hvorki í knatt­spyrnu né körfu­bolta en fann fyrir frelsi þegar það kom að jaðar­í­þróttum. Heiðar Logi fékk fyrsta hjóla­brettið sex ára og núna, 17 árum seinna, er hann atvinnu­maður á brim­brettum og ferð­ast út um allan heim.
Viðtal

Gott að geta rætt um dauð­ann

Séra Bragi Skúlason, sjúkra­hús­prestur á Land­spít­al­anum, veitir þjón­ustu þeim sem grein­ast með lífs­hættu­lega sjúk­dóma og hefur verið við­staddur mörg and­látin. Hann segir að dauð­vona fólk tak­ist á við erf­iða, til­finn­inga­lega líðan - fólk getur verið ósátt, það getur fundið fyrir reiði og ótta og verið að takast á við ákveðin upp­gjör. „Því finnst eins og lífið sé að hlaupa frá því og að það hafi ekki náð að gera það sem það ætl­aði sér í líf­inu. Allt þetta kemur inn á borð hjá mér. Það sama er að segja um trú­ar­leg spurs­mál - hvernig er dauð­inn, hvert við­kom­andi fer þegar hann deyr og sumir velta fyrir sér hvort von sé um að annað líf taki við þegar þeir kveðja.“
Viðtal

„Ég er hvort sem er að deyja“

Eysteinn Skarp­héð­ins­son er með 4. stigs krabba­mein í vél­inda og eru reyk­ingar og óhóf­leg áfeng­is­neysla helstu áhættu­þættir. Með­al­aldur þeirra sem grein­ast er um 72 ár. Eysteinn er 41 árs, hefur reykt frá 14 ára aldri og hefur verið alkó­hólisti í 24 ár auk þess að vera í neyslu ann­arra vímu­efna. „Það er þannig með alkó­hól­isma; það er alveg sama hvert maður fer - hann kemur alltaf með. Hann eyði­leggur, eyði­leggur og eyði­leggur,“ segir hann.

24 mín. lestur

Viðtal

Grátur son­ar­ins stöðv­aði sjálfs­vígið

Tíu dögum fyrir síð­ustu jól tók Kristian Guttesen ákvörðun um að deyja. Hann var kom­inn á enda­stöð. Hann sendi eig­in­konu sinni skila­boð og sagði henni frá ætl­un­ar­verki sínu, kynnti sér hvernig best væri að hnýta heng­ing­ar­hnút og var að leita sér að krók þegar rónni var raskað. Rúmlega árs­gam­all sonur hans vakn­aði af síð­deg­islúrnum og skyndi­lega breytt­ust aðstæður.
Viðtal

„Ég ákvað bara einn dag­inn að verða rit­höf­undur“

Líf hans hefur ekki alltaf verið leik­andi. Hann starf­aði í íslenska fjár­mála­geir­anum á árunum fyrir hrun, var skuldum vaf­inn og leið eins og hann væri fangi eigin lífs. Davíð Rafn Krist­jáns­son var að gefa út sína fyrstu skáld­sögu, Burning Karma, hjá breska for­lag­inu Wild Pressed Books. Hann hafði ekk­ert skrifað nema þurrar lög­fræði­rit­gerðir þegar hann byrj­aði á sög­unni. Davíð vinnur nú að nýrri skáld­sögu um lista­mann en seg­ist hvorki skilja nútíma­list né listir almennt. Hann málar myndir í þeim til­gangi að skilja umfjöll­un­ar­efnið betur og líkir líf­inu við ein­lægt rann­sókn­ar­verk­efni í þágu lista­gyðj­unnar.
ViðtalForsetakosningar 2016

Mistökin eru leið til þroska

Halla Tóm­as­dóttir er eina konan með telj­an­legt fylgi af fram­bjóð­endum til for­seta Íslands, en hún mæld­ist með tæp­lega níu pró­senta fylgi í nýlegri könnun MMR. Hún segir mik­il­vægt að konur þori að bjóða sig fram í for­ystu­stöður í sam­fé­lag­inu og hyggst setja siða­reglur fyrir for­seta­emb­ættið nái hún kjöri. Halla ræðir hér um sýn sína á for­seta­emb­ættið, for­tíð sína í við­skipta­líf­inu og föð­ur­miss­inn sem setti lífið í sam­hengi í miðju efna­hags­hruni.

23 mín. lestur

ViðtalFjármálahrunið

Missti heils­una eftir skilnað

Guð­mundur Gunn­ars­son verka­lýðs­for­ingi er harður nátt­úru­vernd­ar­sinni. Hann sat stjórn­laga­þing og segir að skemmd­ar­verk hafi verið unnið gagn­vart því. Fertugur gekk hann í gegnum sáran skilnað og hafn­aði á gjör­gæslu. Áður hafði hann reynt að yfir­gefa Sjálf­stæð­is­flokk­inn í tvö ár en fékk ekki. Seinna sat hann neyð­ar­fund með stjórn­völdum sem vildu fá eignir líf­eyr­is­sjóð­anna heim.

25 mín. lestur

Viðtal

Nýtir ofbeld­is­reynsl­una í list­inni

Guðrún Bjarna­dóttir leik­kona sagði frá minn­ingum sínum um ofbeld­is­sam­band í ein­lægri grein fyrir um einu og hálfu ári síðan. Hún tók með­vit­aða ákvörðun um að veita engin við­töl í kjöl­far birt­ing­ar­innar en von­aði að greinin myndi vekja sam­fé­lagið til umhugs­unar um ofbeldi í nánum sam­böndum. Næsta skref sé að tala um ofbeld­is­menn­ina sjálfa og segir Guðrún mik­il­vægt að sam­fé­lagið for­dæmi þá ekki, heldur rétti þeim hjálp­ar­hönd. Nú notar hún list­ina til að opna umræð­una enn frekar um eitt faldasta sam­fé­lags­mein okkar tíma – ofbeldi innan veggja heim­il­is­ins.
Viðtal

Ára­langri bar­áttu við kerfið hvergi lokið

Ástríður Páls­dóttir hefur staðið í ára­langri bar­áttu við íslenska ríkið frá því eig­in­maður hennar, Páll Her­steins­son, lést á Land­spít­al­anum árið 2011. Ástríður sakar starfs­fólk Land­spít­al­ans um van­rækslu í aðdrag­anda and­láts hans, en hér­aðs­dómur var ekki sama sinnis. Hún hyggst áfrýja mál­inu til Hæsta­réttar auk þess sem hún hefur lagt fram tvær aðrar kærur á hendur tveimur heil­brigð­is­starfs­mönnum.

Mest lesið undanfarið ár