Ástþór Magn­ús­son Hug­myndir um fram­tíð lands og þjóðar eru rótækar og fram­sæknar. Mynd: Kristinn Magnússon

Forsetaframbjóðendur: Ísland verður fyrirmynd ef ég verð kjörinn forseti

Þann 25. júní næst­kom­andi munu Íslend­ingar kjósa sér nýjan for­seta. Stundin hefur á und­an­förnum vikum kynnt fram­bjóð­endur fyrir les­endum og birtir hér svör Ástþórs Magn­ús­sonar við spurn­ingum sem lagðar eru fyrir alla fram­bjóð­endur.

1. Hvað finnst þér um málsskotsrétt forseta og í hvaða tilfellum getur þú séð fyrir þér að nýta hann?

Árið 1996 tal­aði ég um að færa valdið í auknum mæli til fólks­ins og að hefja slíka lýð­ræð­is­þróun með því að virkja mál­skots­rétt for­seta. Álits­gjafar fjöl­miðla sögðu þetta ekki hægt því engin hefð væri fyrir slíku inn­gripi for­seta.

Forseti not­aði mál­skots­rétt­inn átta árum síðar þegar kost­un­ar­að­ilar fram­boðs hans (eig­endur Norð­ur­ljósa-365 miðla) vildu stöðva fjöl­miðla­frum­varpið. Stór mál eins og Kára­hnjúkar, öryrkja­mál, sala HS-veitu og fyrstu Icesave-lögin fóru hins­vegar í gegn með sam­þykki for­seta. Eftir 15 ár í emb­ætti er skoð­ana­kann­anir sýndu vax­andi óvin­sældir for­set­ans greip hann til þess ráðs að nota aftur mál­skots­rétt­inn. Ég nefni þetta til að fólk átti sig betur á að sitj­andi for­seti nýtti sér mál­skots­rétt­inn meðal ann­ars út frá sér­hags­muna­legum sjón­ar­miðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár