Mynd: Kristinn Magnússon / Stundin

„Ég er hvort sem er að deyja“

Eysteinn Skarp­héð­ins­son er með 4. stigs krabba­mein í vél­inda og eru reyk­ingar og óhóf­leg áfeng­is­neysla helstu áhættu­þættir. Með­al­aldur þeirra sem grein­ast er um 72 ár. Eysteinn er 41 árs, hefur reykt frá 14 ára aldri og hefur verið alkó­hólisti í 24 ár auk þess að vera í neyslu ann­arra vímu­efna. „Það er þannig með alkó­hól­isma; það er alveg sama hvert maður fer - hann kemur alltaf með. Hann eyði­leggur, eyði­leggur og eyði­leggur,“ segir hann.

Það er komið vor. Sólin skín og fyrstu vor­blómin hafa stungið upp koll­inum. Hann stendur fyrir utan fjöl­býl­is­hús í Keflavík. Með bréf­poka í annarri hend­inni. Gengur hægum skrefum inn í húsið. Hann heilsar hlý­lega þegar inn er komið. Hávaxinn, mynd­ar­legur, góð­legur og örgrannur. Hann tæmir inni­hald bréf­pokans á lít­inn disk og setur á borð. Bak­arí­iskökur og fín­erí. 

Púðar bæði á set­unni og við bakið á stólnum sem hann sest í. Bak­verkirnir eru slæmir. Sjálfur getur hann eig­in­lega ekk­ert borðað. Æxlið við vél­indað kemur í veg fyrir það. „Ég borð­aði ekk­ert í fjóra mán­uði í vetur en fékk nær­ingu í gegnum sondu,“ segir hann.

Plast­s­langa sést standa upp úr buxna­strengnum. Næring og mulin lyf hafa verið sett í þessa slöngu und­an­farna mán­uði. Lyfja­gjöf hefur gert það að verkum að æxlið hefur minnkað eitt­hvað og er hann far­inn að borða örlítið.

Hann á erfitt með að kyngja munn­vatni. Stendur reglu­lega upp og skyrpir í eld­hús­vaskinn eða kló­settið á meðan á við­tal­inu stendur. Þetta reynir aug­ljós­lega á.

Sprautu­för á hönd­unum. Hann lyftir upp ermunum og sýnir hel­bláa hand­legg­ina. Minning um lyfja­gjafir og sprautur á sjúkra­hús­inu.

Hann drekkur blá­leitan orku­drykk. Sígar­ettu­stubbar liggja í ösku­bakka.

Fyrst drukkið um helgar

Hann er úr Keflavík. „Ég ólst upp fyrstu árin í Baug­holt­inu og það var svaka­lega góður tími. Ynd­is­legur tími. Það var leik­völlur í miðju hverf­inu og mikið af krökkum.

Ég byrj­aði snemma að æfa fót­bolta og skól­inn fór að snú­ast um að kom­ast út í frí­mín­útur til að ná velli. Krakk­arnir söfn­uð­ust oft saman á kvöldin og fóru í leiki eins og Fallin spýta en við strák­arnir hugs­uðum mest um fót­bolta og körfu­bolta alveg út í eitt. Ég var á tíma­bili í sex 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár