Lista­konan í Selvogi Sig­ur­björg Eyj­ólfs­dóttir kom fimm börnum sínum á legg og gerðsit síðan einbbúi í Selvogi þar sem hún unir glöð við sitt. Mynd: Kristinn Magnússon

„Maður heggur ekki hausinn af vinum sínum“

Sig­ur­björg Eyj­ólfs­dóttir ólst upp í mið­borg Reykja­víkur. Eftir að hafa komið fimm börnum á legg dró hún sig út úr skarka­l­anum og varð ein­búi í Selvogi, rétt hjá Strand­ar­kirkju. Þar unir hún glöð við sitt með land­náms­hænur, gæsir og vernduð af draugum.

Sig­ur­björg Eyj­ólfs­dóttir lista­kona býr ein á jörð sinni, Þor­kels­gerði í Selvogi, sem hún keypti fyrir 25 árum. Hún er ekki með hefð­bund­inn búskap en sinnir list sinni og heldur land­náms­hænur og gæsir. Þá sjá hund­ur­inn Snót og kött­ur­inn Jósefína um að halda henni félags­skap. „Maður er ekki einn á meðan dýrin eru til staðar,” segir hún.

Í næsta nágrenni við hús Sig­ur­bjargar stendur Strand­ar­kirkja sem þekkt­ust er fyrir áheit sem þykja árang­urs­rík. 

,,Það er góður andi í þessu húsi. Hér bjuggu lengi hjónin Bjarni Jónsson og Þórunn Frið­riks­dóttir ljós­móðir. Þau eign­uð­ust 17 börn. Það hafa fæðst í þessu húsi fjöl­mörg börn. Hér tók Þórunn á móti á börnum og gekk frá þeim sem voru látnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dreifbýlið

Reiði í Grímsey eftir mannfræðirannsókn
FréttirDreifbýlið

Reiði í Grímsey eftir mann­fræði­rann­sókn

Rannsókn Ómars Valdi­mars­sonar á íbúum eyj­unnar vekur reiði. Meist­ara­rit­gerð tekin af vef Háskóla Íslands. Sagt frá veik­indum nafn­greindra eyja­skeggja og dvalar á geð­deild. Nafn­greind kona sögð vits­muna­lega skert og hjálp­ar­þurfi. Sonur hennar nafn­greindur. Kennslu­stjóri stað­festir að rit­gerðin hafi verið fjar­lægð og sé til skoð­unar fræða­sam­fé­lags­ins. Höfundur kann­ast ekki við ólgu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár