Mynd: Kristinn Magnússon

Mistökin eru leið til þroska

Halla Tóm­as­dóttir er eina konan með telj­an­legt fylgi af fram­bjóð­endum til for­seta Íslands, en hún mæld­ist með tæp­lega níu pró­senta fylgi í nýlegri könnun MMR. Hún segir mik­il­vægt að konur þori að bjóða sig fram í for­ystu­stöður í sam­fé­lag­inu og hyggst setja siða­reglur fyrir for­seta­emb­ættið nái hún kjöri. Halla ræðir hér um sýn sína á for­seta­emb­ættið, for­tíð sína í við­skipta­líf­inu og föð­ur­miss­inn sem setti lífið í sam­hengi í miðju efna­hags­hruni.

Halla Tóm­as­dóttir segir það ekki hafa verið ein­falda ákvörðun að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Þegar hún var fyrst hvött til að gefa kost á sér var svarið afdrátt­ar­laust nei. Embættið höfð­aði ekki til hennar. Henni fannst það ein­angrað, í of mik­illi fjar­lægð frá þjóð­inni og taldi að í því væri ekki endi­lega gagn. Það erf­ið­asta við ákvörð­un­ina snéri hins vegar að börn­unum hennar tveimur, Tómasi Bjarti fjórtán ára og Auði Ínu tólf ára, og móð­ur­legri umhyggju fyrir því að veita þeim áfram eðli­legt líf. 

„Mér leið ekki vel á meðan ég var að reyna að taka þessa ákvörðun, en um leið og ég tók stökkið þá leið mér vel,“ segir Halla, og kemur sér fyrir í tveggja manna sófa, gegnt blaða­manni, á kosn­inga­skrif­stofu sinni í Kópa­vog­inum. Hún segir að tvennt hafi gert úts­lagið um að hún ákvað að end­ingu að bjóða sig fram. 

Í fyrsta lagi hafi það verið ungt fólk sem kom að máli við hana, fólk sem hafði meðal ann­ars unnið með henni að Þjóð­fund­inum árið 2009 og að Alþjóð­legu jafn­rétt­is­ráð­stefn­unni WE 2015 sem haldin var í Hörpu á síð­asta ári, og hvatti hana til að bjóða sig fram. „Ungt fólk sem vill horfa til fram­tíðar og inn­leiða þessi grunn­gildi sem sam­þykkt voru á þjóð­fund­inum. Ungt fólk sem vill umbreyt­ingar í sam­fé­lag­inu. Fyrir mér snú­ast þessar kosn­ingar að miklu leyti um val milli for­tíðar og fram­tíðar. Ég kýs fram­tíð­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

11 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár