Mynd: Kristinn Magnússon

Grátur sonarins stöðvaði sjálfsvígið

Tíu dögum fyrir síð­ustu jól tók Kristian Guttesen ákvörðun um að deyja. Hann var kom­inn á enda­stöð. Hann sendi eig­in­konu sinni skila­boð og sagði henni frá ætl­un­ar­verki sínu, kynnti sér hvernig best væri að hnýta heng­ing­ar­hnút og var að leita sér að krók þegar rónni var raskað. Rúmlega árs­gam­all sonur hans vakn­aði af síð­deg­islúrnum og skyndi­lega breytt­ust aðstæður.

„Þetta varð að ger­ast í kyrra­lífs­mynd, án nokk­urrar hreyf­ingar,“ útskýrir Kristian. „Ákvörð­unin hafði verið tekin og ég fann fyrir mik­illi ró og sátt. Ég var að reyna að yfir­færa hug­ann á umhverfið – en umhverfið er aldrei rólegt. Það er alltaf eitt­hvað sem raskar rónni.“

Við Kristian sitjum á myrku kaffi­húsi í miðbæ Reykja­víkur og ræðum um dauð­ann. Fyrir framan okkur er útprentað ein­tak af meist­ara­rit­gerð­inni „Sjálfs­víg, örvænt­ing og rök­vísi fjar­stæð­unnar“ sem Kristian lauk við í vor. Samtímis skrif­aði hann tvær ljóða­bækur sem hann safnar nú fyrir á Karolina Fund, en önnur þeirra fjallar einmitt um hans eigin glímu við þung­lyndi og sjálfs­vígs­hugs­anir. Í ljóða­bók­inni fæst hann við efnið innra með sjálfum sér en í rit­gerð­inni skoðar hann eigin ákvörðun utan frá með hlut­lausum hætti, með það að mark­miði að skilja betur örvænt­ing­una sem leiðir til þess að ein­stak­lingur tekur ákvörðun um sjálfs­víg. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár